Gullkorn
Nú langar mig að setja hér inn nokkur gullkorn frá börnunum mínum.
Jónína vill alltaf hafa allt á hreinu og vill vita hvað allt þýðir ef hún heyrir orð sem hún skilur ekki. Stundum eru þetta orð sem mér finnast ósköp eðlileg en um daginn spurði hún mig hvað væri að vera skrámaður. Ég var ekki alveg með samhengið á hreinu og hélt hún væri að tala um mann sem væri að skrá!! Hún skildi auðvitað ekkert útskýringarnar mínar enda kom þetta úr sögu sem hún hafði heyrt og talað um mann sem var skakkur og skrámaður eftir einhverja erfiða meðferð!!
Um daginn var ég líka að skamma hana og sagði að hún væri bara óþekk stelpuskjáta. Þá horfði hún á mig spurnaraugum og sagði "hvað er skjáta?" Þá gat mamman auðvitað ekkert verið reið lengur.
Daníel er hins vega mikill spekingur og vill vita allt milli himins og jarðar. Hann kemur oft með mjög heimspekilegar spurningar og stundum er fátt um svör hjá foreldrunum. Hann spurði t.d. pabba sinn hvernig taugakerfi í köttum væri og hjá mömmunni vildi hann fá að vita allt um Kínamúrinn. Ég er afskaplega léleg í öllu sem tengist landafræði og því fátt um svör í það skiptið.
