Það gerist ekki betra!
Nú er loksins búið að tengja pottinn sem við fengum okkur í fyrra. Þvílíkur lúxus. Það eina sem mig vantar núna er einhver sem kemur og þrífur húsið fyrir mig og þvær þvottinn, he he. Fyrir utan þau leiðinlegu verk hamast ég bara við að vera í sumarfríi og hef það huggulegt, busla með krökkunum í pottinum og læt sólina sleikja mig.
Svo er ég líka orðin formlega útskrifaður náms- og starfsráðgjafi. Húrra fyrir mér. Það gerðist um helgina en ég komst því miður ekki í athöfnina sjálfa. Það gerði svo sem ekki mikið til því þetta eru ömurlegar athafnir hjá Háskólanum. Hefði samt verið gaman svona upp á formlegheitin.
Annars er öllum velkomið að kíkja til mín á pallinn. Ég get svarið það að ég held að það skíni meiri sól þar en annars staðar!!
Lifið heil.
