frí frí frí
Langþráð frí er upprunnið. Fór í próf á þriðjudag sem gekk ágætlega, vona ég.....Hef líka verið að fá út úr verkefnum undanfarið og gengið alveg glimrandi. Er bara ánægð með mig.
Núna ætla ég bara að klára að undirbúa jólin, svosem ekki mikið eftir því Njörður er búinn að vera svo duglegur að hjálpa til :-) Verðum hér fjögur á aðfangadag í kósýheitum og svo taka jólaboðin við eftir það. Mmmmm ég ætla að hafa það svo gott.
Óska bara öllum sem ráfa inn á þessa síðu gleðilegra jóla og gæfuríks árs. Ef þið hafið ekkert að gera yfir hátíðarnar þá er ég heima í fríi til 4. janúar he he he.
