Eftir nákvæmlega tvær vikur verð ég enn sofandi í rúminu mínu þó komið verði fram undir hádegi. Af hverju? Jú eftir nákvæmlega tvær vikur verður Kolla litla komin í sumarfrí. Mikið verður það ljúft. Annars er búið að vera mikið að gera undanfarna daga. Fór á stórskemmtilegt leirnámskeið og hlakka mikið til næsta tíma eftir viku. Held ég þyrfti að koma mér oftar á einhver svona námskeið. Svo ætla ég auðvitað að vera ótrúlega dugleg að mála í sumar. Jónína kemst svo snemma inn á leikskólann svo ég hlýt að geta notað tímann vel. Held bara að þetta verði eitt besta sumar í mörg ár!!
Hér er ég
Friday, May 27, 2005
Monday, May 23, 2005
Hætt við að hætta við að hætta
Hveraerði - Selfoss - Hveragerði - Selfoss er nú komin í marga hringi um hvert ég stefni næsta vetur. Búin að fara yfir kosti galla hundrað sinnum og kemst ekki að neinni niðurstöðu. Er því að hugsa um að láta börnin ráða ferðinni. Auðvitað er miklu betra að vera nálægt þeim, vita af þeim í næsta nágrenni. Já Hveragerði skal það vera!!!
Annars margt búið að gerast. Fór á Laugarvatn um helgina í útskrift. Tinna sys búin með íþróttabraut og bara eitt ár eftir hjá henni. Hún er nú búin að standa sig aðeins betur en ég þessi menntaskólaár. Auðvitað hitti ég þarna fullt af fólki sem ég kannaðist við. Tíu ára júbilantar mættir á svæðið og ekki laust við að maður fengi fiðring af tilhlökkun til næsta árs. Hlakka mikið til að fá að djamma á vistinni aftur og rifja upp gamla tíma.
Skrapp svo í borgina á sunnudag og bauð allri fjölskyldunni í mat hjá mömmu og pabba. Pabbi var reyndar eitthvað tregur á þetta boð mitt og hélt lengi að ég væri að bjóða honum í mat!!!
-" Nei, ég er að bjóða mér í mat hjá þér"
- "Nína það er verið að bjóða okkur í mat"
- " Nei, ég er að koma í mat til þín"
-" bjóða mér í mat hjá þér?"
Ohh hann pabbi, til allrar hamingju tókst mér að sannfæra hann um að ég væri á leiðinni í mat. Græddi samt ekkert á því þar sem ég þurfti að kaupa mér sjálf eitthvað á grillið áður en ég mætti á svæðið!!!
Thursday, May 19, 2005
Í kartöflugarðinum heima
Oh ég er svo mikil húsmóðir. Fór og keypti mér útsæði í fína kartöflugarðinn minn og í gær fór ég til Agnesar að hirða blómin hennar áður en hún flytur. Er hægt að gerast mikið heimilislegri en þetta?? Jú það er hægt, ætla nefnilega líka að setja viðarvörn á þetta palldrasl sem er fyrir utan hjá mér. Mjög ljótur pallur en hef ekki efni á að laga hann. Reyni bara að skella einhverjum lit á þetta í staðinn.
Svo er enn verið að rugla í höfðinu á mér. Skólastjórinn búin að biðja mig að vera áfram, sagði að hann vildi endilega halda mér og allt það. Erfitt að vera svona vinsæll he he. Sagðist skildi hugsa málið til enda, en auðvitað hentar mér betur að vera í Hveragerði, svona ef ég reyni að vera raunsæ ha! Æ það er svo erfitt að taka svona ákvarðanir.
