Thursday, February 23, 2006

London, here I come...

Já eftir nákvæmlega sólarhring verð ég á flugi yfir hafið á leið til London. Hlakka mikið til enda aldrei komið til Englands né nokkurs annars enskumælandi lands, enskukennarinn sjálfur.

Annars er ég búin að bóka mér annað far í apríl. Er á leið á ráðstefnu enskukennara í Harrogate í Englandi. Loksins þegar ég fer af stað fær mig ekkert stöðvað!!! Ég og annar enskukennari fljúgum til Glasgow og förum þaðan til Harrogate.

Skrifa allt um ferðina þegar ég kem til baka

Thursday, February 16, 2006

Klukk, klukk

Æi mér hálfleiðist svona klukkidí vesen en bara af því að það var Tinna....

4 vinnur um ævina: Esso Tálknafirði, Esso Geirsgötu, Leikskólar og skólar
4 bíómyndir sem ég held uppá: Ég er snillingur að gleyma bíómyndum en man alltaf eftir myndum eins og Seven, Grease, Dirty dancing og Alfie
4 staðir sem ég hef búið á: Móatún 14 (Tálknafjörður) Kambahraun 32 (Hveragerði) Hjallabrekka 26 eða var það 29 (Kópavogi) Hraunbær 190 (Reykjavík)
4 sjónvarpsþættir sem ég held uppá: Er algjör sjúklingur og missi aldrei af Desperate housewifes, Lost, The O.C. og Survivor
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Noregur, Spánn, Danmörk, Vestmannaeyjar
4 síður sem ég skoða á hverjum degi: Pósturinn minn, bloggsíður, mbl.is og leikjanet.is
4 matarkyns sem ég held uppá: MMmm matur, matur, matur, matur
4 staðir sem ég vildi ég væri á núna: Kúba, Ítalía, Grikkland eða bara góð sólarströnd.
4 sem ég ætla að klukka: Oh þetta er alltaf erfiðast....Svanhildur, Sigrún Jóns, Matta og Halli he he kominn tími á að hann uppfæri bloggið sitt.

Takk fyrir mig og góðar stundir.

Monday, February 13, 2006

Til hamingju Halli

Dagurinn í dag er tileinkaður honum bróðir mínum. Þó hann sé komin hátt á fertugsaldurinn þá er ég alltaf tuttugu og eitthvað....he he

Það er svo sem ekki mikið að gerast hjá mér þesa dagana. Er bara voða löt og kenni mínum lága blóðþrýsting um allt saman. Fór nefnilega í hjartarannsókn um daginn og kom svona asskoti vel út fyrir utan blóðþrýstingin, kannski þess vegna er ég svona róleg í tíðinni. Ég er alltaf að gera grín að syni mínum fyrir að vera svo seinn og utan við sig en síðustu daga er ég svo sannarlega búin að komast að því hvaðan hann fær þetta allt saman. Ég hljóp til dæmis heim úr leikfimi á íþróttaskónum um daginn og gleymdi mínum skóm. hí hí

Halli minn eigðu góðan dag!!!

Wednesday, February 08, 2006

Heimska, heimska heilbrigðiskerfi.

Fyrir rúmlega viku síðan fékk ég mjög skrítinn magaverk og ákvað að fara til læknis til að kíkja á þetta. Ég byrjaði á að hringja í heilsugæsluna í Hveragerði og hélt að ég fengi tíma fljótlega. Þar eru þrír læknar starfandi en þar sem mér líst ekkert á einn þeirra bað ég sérstaklega um tíma hjá öðrum hvorum hinna. Þetta var held ég alveg í byrjun febrúar annaðhvort þann 1. eða 2. Mér var sagt að ég gæti fengið tíma þann 16. "HA 16.??? En þá verð ég örugglega dauð!!!"
Ég brunaði því seinni part dags á Selfoss á læknavaktina þar til að athuga hvort ég fengi bót meina minna. Þar borgaði ég heilar 1750 kr. fyrir að fá að hitta lækni. Hann sendi mig í blóðprufu sem ég borgaði auka 1000 kr. fyrir. Ekki gat þessi blessaði læknir fundið út hvað væri að mér svo hann gaf mér tíma hjá kvensjúkdómalækni. Í gær brunaði ég svo aftur á Selfoss. Ég beið og beið en aldrei var ég kölluð inn til læknisins. Þegar ég var búin að bíða svolítið lengur kom loksins einn á hvítum slopp hlaupandi eftir ganginum og spurði hvort ég væri Kolbrún. Jú jú það var ég. Þá höfðu orðið einhver mistök, læknirinn hafði bókað á mig tíma sem átti ekki að vera hægt og sónarinn upptekinn allan daginn í mæðraskoðunum svo hann gat ekki skoðað mig.
Hann gaf mér annan tíma seinna í vikunni en var nú svo ljúfur að ég þurfti ekki að borga fyrir alla þessa bið. Nei enda hefði mér ekki dottið í hug að fá að borga fyrir það eitt að bíða.
Í þriðja sinn þegar ég bruna svo á Selfoss þarf ég auðvitað að borga fyrir skoðunina. Hversu mikið veit ég ekki. En það er næsta víst að það verður búið að kosta mig hátt í fimmþúsund kall að fá illt í magann. Fyrir utan það að mér er löngu hætt að vera illt í maganum. Vil bara vera viss um að allt sé í lagi!!

Heilbrigðiskerfið á Íslandi er allt í molum. Við borgum okkar skatta sem eiga fara í þetta kerfi en þurfum samt að leggja út hellings pening ef við þurfum að notfæra okkur læknisaðstoð.
Þess vegna er ég algjörlega mótfallin þessum heimskulegu hugmyndum um hátæknisjúkrahús ef það er svo ekki hægt að standa undir ósköp venjulegri þjónustu. Það er alltaf verið að skera niður og vælt ef það á að hækka laun starfsmanna. Væri ekki nær að nota þessa blessuðu Símapeninga til að rétta aðeins úr kútnum og gera hlutina almennilega sem við höfum fyrir!!!

...og nei ég er ekki ólétt!!

Friday, February 03, 2006

Þá er þessi vinnuvika liðin og kominn föstudagur. Mér finnst reyndar alltaf vera föstudagur.
Nú er ég að fara að bruna í bæinn í allsherjar hjartarannsókn. Ekki það að ég sé með neina hjartabilun (bara svolitla geðbilun hehe). Nei nei það stóð nú bara þannig á að öllum skólanum var boðið að taka þátt og allir drifnir í rannsókn. Vonandi kemur maður bara vel út úr því.

Held að helgin verði svo bara róleg svona skemmtanalega séð að minnsta kosti. Njörður ætlar reyndar eitthvað að myndast við að flísaleggja. Já já bara gaman.