Yndislegi sonur minn!!
Þar sem skólinn er nýbyrjaður verð ég að koma með smá sögur af syni mínum.
- Í fyrsta tónmenntatímanum stóð hann upp og söng einsöng, lag með Á móti sól en þess má geta að tónmenntakennarinn er einmitt í þeirri hljómsveit svo hann hefur unnið sér inn nokkur stig þar!!
- Þegar umsjónarkennarinn sagði honum að koma og lesa fyrir sig svarar drengurinn: nei, nei ég þarf ekkert að lesa, ég er fluglæs!!!
- Þegar hann var að horfa á sjónvarpið um daginn sagði hann mér að hann þyrfti nú að fara að horfa á fleiri enska þætti sem væru ekki bannaðir svo hann gæti lært meiri ensku, svona þætti eins og Rockstar!!!
Annars er nóg að gera á heimilinu:
- Afmæli í kvöld
- Blómstrandi dagar
- Brekkusöngur
- Brenna
- Flugeldasýning
- Ítölsk veisla næsta föstudag
- Hitti útskriftarstelpurnar mínar næstu helgi
- Allt að gerast!!
Þar til næst, hafið það gott og guð geymi ykkur!!!


