Jæja mínir kæru æstu aðdáendur, ég veit að ég hef verið skelfilega löt við að skrifa en hef þess í stað verið mun duglegri við að eyða peningum, já og það mikið af þeim. Hef meira að segja eytt allsvakalega um efni fram. Við hjónakornin tókum nefnilega upp á því brjálæði að kaupa okkur jeppa. Það er sko enginn jepplingur heldur alvöru Nissan Terrano. Ekki það að við séum neitt alvöru jeppafólk en það má alltaf reyna. Nú er bara rifist um hver á að keyra í hvert sinn sem fjölskyldan fer á rúntinn því það er svakalega gaman að keyra þennan bíl.
En ekki nóg með að við höfum keypt okkur nýjan bíl heldur þurftum við að vera svolítið flott á því innandyra líka og keyptum okkur nýtt sófasett. Nei við unnum ekki í happdrætti, við erum bara svolítið klikkuð. En mér finnst gaman að vera klikkuð þegar ég á svona hluti skilið.
Svo er bara jólaundirbúningur í fullum gangi. Búin að baka piparkökur og piparkökuhúsið er í byggingu. Ætla svo í bæinn á morgun og reyna að versla einhverjar jólagjafir. Ætla að reyna að klára þetta allt sem fyrst.
Er annars að fara að horfa á uppáhlds þáttinn minn á skjá einum. Rockstar INXS. Mjög skemmtilegur þáttur með frábærum lögum sem ég fíla. Ég held sko með Jordis, hún er með geggjaða rödd og ef hún vinnur ekki er eins gott að hún fari í sóloferil. Þá ætla ég allavega að kaupa plötuna hennar.
Já og Golfinn minn er enn til sölu, búið að setja nýja tímareim og alles, alveg í toppstandi. Þarf bara að koma honum frá mér ca. 350.000 gjafverð!!!