Horfði í gærkvöldi á íslenska bachelorinn. Fannst ég vera að horfa á hallærislega fyndna þýðingu úr þessum gömlu amerísku, Muhahahaha þetta var svo hallærislegt að ég lá í krampa, ekkert nýtt, engin breyting, bara á íslensku.
Er annars mjög föst í sjónvarpinu þessa dagana. Er samt alltaf af furða mig á þessari agalegu dagskrá á Rúv. Sá í einhverju blaði um daginn að það var verið að auglýsa allar bíómyndir í október. Á meðan Stöð 2 var með um 20 bíómyndir var Rúv með ca. 4. Fannst þetta frekar skrítið og er að velta því fyrir mér hvort þetta sé virkilega svona. Er endalaust hægt að láta okkur borga fyrir Leiðarljós og Spaugstofuna? Er ekki komið nóg af þessu spaugi. Fíla reyndar einn þátt alveg í botn. Little Britain, með gaurunum tveimur eru alveg óborganlegir.
Kvöldin mín fara semsagt í lítið annað en sjónvarpsgláp hvort sem það eru skemmtilegir eða leiðinlegir þættir. Finnst bara ógeðslega gott að liggja í sófanum og þurfa ekkert að hugsa.
Las annars um daginn að íslenska orðið kátur þýðir graður á færeysku, finnst það fyndið! Yndisleg þessi færeyska.