Frí, frí, frí
Já nú hef ég hamast við það í heila viku að vera í fríi. Er búin að hvíla mig vel og nú veit ég varla hvernig ég á að snúa mér, snýst helst bara í hringi og bora í nefið. Ekkert að frétta af húsnæðismálum en þar sem við erum byrjuð í pallasmíð er ekkert víst að maður tími að fara héðan þegar þessi fíni pallur verður kominn upp.
Daníel er byrjaður á golfnámskeiði og gengur glymrandi vel. Svo er hann að fara að keppa í fótbolta á Borgarnesmóti næstu helgi. Það fer auðvitað öll fjölskyldan með svo þetta verður fínasta útilega.
Fer að setja hér inn eitthvað af myndum í stað skrifta ef við gerum eitthvað skemmtilegt í sumar.
Þar til næst, lifið heil!
