Mikið að gera
Það er búið að vera ansi mikið að gera undanfarið.
Byrjum á nornakvöldi sem ég fór á ásamt yndunum mínum í saumaklúbbnum. Stórskemmtilegt kvöld þar sem voru borðaðar þær bestu pizzur sem ég hef smakkað. Takk Viðar. Þess má geta að hann var eini karlmaðurinn sem fékk að koma þarna nálægt sökum hæfni í pizzugerð. Svo var spáð í bolla og spil og hlegið og drukkið fram á nótt. Alltaf gaman að hitta þessar elskur og ég tala nú ekki um þegar við breytum aðeins út af hefðbundnum saumaklúbbum.
Svo fór ég í starfsmannapartý. Þar vorum við dregin í þoku og sudda að Hellisheiðarvirkjun. Þar fengum við fínar veitingar bæði í föstu og fljótandi fæði. Þar sem þetta var á góðum föstudegi höfðum við nokkrar tekið forskot á sæluna og skellt nokkrum köldum í okkur löngu fyrir brottför. Eftir virkjunarheimsókn var svo endað í fínasta mat í golfskálanum. Heimi tókst reyndar að eyðileggja skemmtunina með einhverjum blammeringum frá fyrrum Amsterdam-ferð, en ég er með áform um hefndir. Bíðið bara Heimir og félagar!!!
Á milli djamma hef ég svo reynt að læra en gengur svakalega hægt. Nú eru reyndar að hellast inn lesefni og verkefni í gríð og erg svo það er betra að fara að taka sig á. Fer svo annað slagið í starfsþjálfun í bæinn. Fylgist grannt með námsráðgjöfum að störfum í kennaraháskólanum og finnst það mjög áhugavert starf.
En í staðinn fyrir að læra á ég eftir að eyða nokkrum kvöldum hjá Leikfélaginu þar sem ég hjálpa þeim við að mála sviðsmynd. En það er bara gaman.
Eins og þið sjáið, brjálað að gera. Tek svo bara langt og gott jólafrí í afslöppun. Ekki svo langt í það, eða hvað??? Annars finnst mér Dagur B. Eggertsson miklu sætari en Villi Vill....
