Thursday, May 18, 2006

Er ekki komin tími til að láta vita smá af sér.
Það er bara búið að vera svo mikið að gera undanfarið og allt á fullu. Það eru náttúrulega að koma próf og svo er ég að skipuleggja skólaferðalag fyrir yndislegu gríslingana mína. Fjáröflun og foreldrafundir í sambandi við það allt saman. Svo erum við búin að útrýma köngulóm úr Heiðarbrún 62 og passið ykkur bara köngulóarfjandar ef þið ætlið að abbast upp á mig!!

Annars gaf ég mér smá tíma á milli köngulóardrápa og arfatínslu og fór á árshátíð hjá Hveragerðisbæ. Það var dúndur stuð og ég skemmti mér þrusu vel. Það kom dansari að sýna salsa dans og dreif svo alla upp á svið í danskennslu. Þetta fór alveg ofsalega vel í fólk og stuðið mikið.

Eftir skólaferðalagið í lok maí á mér örugglega eftir að finnast ég vera komin í sumarfrí þó vinnudagarnir í júní verði nokkrir. Úff, verður strembið að halda utan um þennan hóp í þrjá daga.

Annars er Njörður búinn að skila öllum verkefnum af sér svo það glittir í mastersgráðuna handan við hornið. Útskrift hjá honum í júní. Ég verð svo bara að fara að koma mér sjálf í eitthvert nám. Gengur ekki að láta kallinn stinga sig af í gráðunum, he he.
Svo er auðvitað Eurovisjon í kvöld. "Til hamingju Ísland" þegar Sylvia er dottin út og þessum skrípaleik lýkur öllum saman. Svona í alvöru, þetta er löngu hætt að vera fyndið.

Lofa hér eftir reglulegum færslum, þó sérstaklega þegar ég verð komin í tveggja mánaða sumarfrí he he.

Lifið heil