Thursday, September 25, 2008

Skólaleiði

Úff var rétt í þessu að prenta út glærur og annað fyrir staðlotu sem ég er að fara í á morgun og á laugardag. Held að þessir kennarar séu að tapa sér. Er að prenta út c.a. 100 glærur!!! Er ekki viss um að ég nenni að sitja yfir þessu öllu saman. Mig vantar allavega mjög mikla jákvæða styrkingu til að komast í gegnum þetta.

Sunday, September 21, 2008

Útsvar og afmæli

Eins og einhverjir glöggir lesendur tóku kannski eftir fórum við fjölskyldan í Útsvar á föstudaginn. Njörður var þar í aðalhlutverki og þó hann hafi ekki farið heim með verðlaun þá er óhætt að segja að Daníel hafi gert það. Hann átti afmæli þennan sama dag og fékk óvæntan afmælissöng í beinni útsendingu. Kappinn var ótrúlega glaður með þetta enda góður endir á afmælisdegi þó pabbi hafi tapað í Útsvari.

Svo er nóg að gera á stóru heimili. Afmælisveisla og matarboð um helgina svo ég er ekki nógu dugleg við að sinna þessum fáu einingum sem ég skráði mig í í haust. Er eiginlega alveg að gugna á því öllu saman.

Annars erum við bara fín!!!

Sunday, September 07, 2008

Bætum kjör ljósmæðra!!

Ég er að verða ósköp löt við að blogga, ég er reyndar búin að vera ósköp löt við hvað sem er. Er haldin einhverri yfirþyrmandi leti sem ég kemst ekki úr.

Það sem hefur helst legið á mér þessa dagana er kjarabarátta ljósmæðra. Ég ætla rétt að vona að vitleysingurinn sem kallast fjármálaráðherra þessa lands fari að hugsa sinn gang. Ég er ein af þeim sem gæti orðið fyrir skertri heibrigðisþjónustu ef áfram heldur sem horfir en ljósmæður mega samt ekki gefast upp. Þær eiga allan minn stuðning enda til skammar hvernig þessi menntun er metin, hún er bara ekkert metin. Við lifum á 21.öldinni og viljum fagfólk í öll störf. Við fáum ekki áfram fagfólk ef ekki eru greidd laun í samræmi við nám sem fólk leggur á sig. Þá leitar fólk annað. Hver á þá að taka á móti börnum barnanna minna?