Monday, July 28, 2008

Uppáhalds landið mitt!!!

Þá erum við komin heim úr tveggja vikna ferð til Kaupmannahafnar. Það var auðvitað bara gaman. Vorum í mjög fínu húsi í Herlev og höfðum það ótrúlega gott. Gerðum auðvitað ansi margt. Vorum mikið með Hönnu og Finni sem voru afskaplega dugleg við að fara með okkur hingað og þangað. Við fórum saman á Bakken, í bæjarferð, skógarferð, á ströndina og mjög skemmtilega ferð í Sommerland þar sem hefði verið hægt að eyða mun meiri tíma. Alveg frábærar samverustundir, takk fyrir allt saman kæru vinir.

Við gerðum líka ýmislegt fleira skemmtilegt því seinni vikuna leigðum við bílaleigubíl og vorum dugleg að keyra um Sjáland. Fórum til Helsingör og Roskilde þar sem við skoðuðum víkingaskipasafn og röltum um bæinn. Ég var mjög hrifinn af bænum, allt mjög rólegt og fallegt. Mikið að gömlum flottum byggingum og kirkjan með öllu kóngafólkinu í líkkistum innanhúss mjög merkileg.
Dýragarðurinn í Knuthenborg var líka fínn þó ég hafi aldrei beðið eins lengi í biðröð og þar. Þetta er risa dýragarður sem maður keyrir í gegn og getur stoppað hér og þar og klappað dýrunum. Það tók ekki nema tvo tíma að komast að og skoða tígrisdýrin :-) gaman, gaman. En fyrir utan þessa tvo tíma var þetta alveg fínt.

Ég væri svo til í að búa í Danmörku. Ég fékk líka þessa tilfinningu þegar ég var þar síðast. Eg gæti alveg vanist góðum sumrum og strandarferðum og fallegum gróðri. Það eina sem hamlar mér núna er tungumálið. Ég get ekki hugsað mér að flytja nema hafa það sæmilegt og til að fá góða vinnu er víst betra að tala dönsku eins innfæddur, ég er víst langt frá því að geta það ;-)