Sunday, September 07, 2008

Bætum kjör ljósmæðra!!

Ég er að verða ósköp löt við að blogga, ég er reyndar búin að vera ósköp löt við hvað sem er. Er haldin einhverri yfirþyrmandi leti sem ég kemst ekki úr.

Það sem hefur helst legið á mér þessa dagana er kjarabarátta ljósmæðra. Ég ætla rétt að vona að vitleysingurinn sem kallast fjármálaráðherra þessa lands fari að hugsa sinn gang. Ég er ein af þeim sem gæti orðið fyrir skertri heibrigðisþjónustu ef áfram heldur sem horfir en ljósmæður mega samt ekki gefast upp. Þær eiga allan minn stuðning enda til skammar hvernig þessi menntun er metin, hún er bara ekkert metin. Við lifum á 21.öldinni og viljum fagfólk í öll störf. Við fáum ekki áfram fagfólk ef ekki eru greidd laun í samræmi við nám sem fólk leggur á sig. Þá leitar fólk annað. Hver á þá að taka á móti börnum barnanna minna?

1 Comments:

At September 07, 2008 9:50 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég er alveg sammála þér Kolla. Þetta er náttúrulega kvennastétt og það er ekki hægt að borga þeim sanngjörn laun.
Kveðja,
Bryndís

 

Post a Comment

<< Home