Ég hlakka svo til.....
Já ætli það sé ekki komin tími til að láta vita af sér. Nóg að gera eins og fyrri daga. Skólinn kominn á fullt en hugurinn ekki kominn alveg jafn mikið á fullt í þeim efnum. Erfitt að koma sér af stað að lesa aftur.
Við erum búin að kaupa okkur flugmiða til Svíþjóðar næsta sumar. Hlökkum mikið til þó enn sé hálft ár til stefnu. Verður gaman að slappa af í tvær vikur með fjölskyldunni. En í millitíðinni ætla ég að skella mér til Hollands með vinnunni. Alltaf svo gaman að hafa eitthvað til að hlakka til.
Jónína litla er byrjuð í fimleikum og stendur sig vel. Hún hlakkaði svo mikið til að byrja að hún svaf í fimleikabolnum sínum fyrstu tvær næturnar eftir að hún fékk hann. Svo var skottan í þriggja og hálfs árs skoðun í morgun. Kom mjög vel út úr því. Ólíkt bróður sínum tekur hún stundum þvermóðskuköst og vill nú ekki gera akkúrat það sem hún er beðin um. Þannig að ég þarf að fara með hana til augnlæknis. Hún átti að horfa í gegnum þrívíddargleraugu og benda á myndir sem voru í þrívídd en krakkinn neitaði því. Við gátum því ekki verið viss um hvort hún sá ekki þrívíddarmyndirnar eða var bara dyndótt. Best að fara því aftur og hafa þetta allt á hreinu. Ef hún sá ekki myndirnar gæti það þýtt að hún er með sjónskekkju.
Daníel gengur líka vel í skólanum. Hann var með þeim hæstu á prófum og virðist eiga mjög auðvelt með að læra. Það er reyndar ansi mikill galsi í honum en við erum að vinna stíft í því að halda honum niðri á jörðinni svo þetta fer allt batnandi. Batnandi mönnum er best að lifa!!
