Wednesday, September 28, 2005

Klukk klukk

VAr víst klukkuð af henni Svanhildi og hér koma því 5 gagnslausar staðhæfingar um mig:

1. Þegar ég var lítil langaði mig óskaplega mikið til að fótbrotna svo ég þyrfti ekki að labba í skólann.

2. Ég verð alveg óskaplega sjaldan veik, sem mér finnst ekki gott því stundum vakna ég á morgnana og hugsa hvað það væri gott að vera veikur svo ég geti sofið lengur. En viti menn alltaf tekst mér þó að rífa mig á fætur á réttum tíma.

3. Ég er skelfilega hrædd við kóngulær.

4. Ég er óskaplega áhrifagjörn og þoli ekki þegar mér er boðið á einhverskonar kynningar því ég enda allaf með því að kaupa eitthvað sem er "algjörlega ómissandi", eða þannig.

5. Ég var mjög óstýrilát sem unglingur sem skýrir kannski áhuga minn á vandræðaunglingum í dag.

Ég veit svo sem ekkert hverjir lesa þessa síðu og flestir verið klukkaðir sem blogga. Ætla samt að prófa að klukka Vilborgu litlu systir Jónínu og Sigurbjörgu ömmu.

Öfugt við marga aðra var ég himinlifandi þegar ég uppgvötaði að lærin mín komust varla í buxur sem síðasta vetur voru orðnar of víðar á mig. Húrra fyrir mér!!

Eigið góðan dag.

Monday, September 26, 2005

Þessi yndislegu börn

Dóttir mín er algjört yndi. Hún getur horft á mann með fallegu augunum sínum og brætt hvert einasta hjarta. Stundum kemur hún alveg óvænt til manns og segist elska mann, svo telur hún upp alla hina fjölskydumeðlimina og segist elska þá líka. Alveg yndislegt barn. En þess á milli breytist hún stundum í algjört ÓARGADÝR. Þá gerir hún allt sem hún veit hún á ekki að gera, kastar leikföngunum sínum út um allt, stríðir bróður sínum og lemur hann í hausinn, svo lemur hún jafnvel foreldra sína í hausinn líka. Þegar hún er í þessu skapi finnst henni sniðugt að láta skamma sig og hlær bara framan í mann. Eina ráðið til að róa hana er að henda henni inn í herbergi og láta hana skammast sín. Það kannski virkar í eina mínútu, þá grenjar hún eins og hún skammist sín ógurlega en svo er henni alveg sama og fer bara að leika sér. Þá er hún aftur orðin þetta undursamlega skemmtilega barn sem hún á að sér að vera.

Sonur minn er líka algjör sjarmör. Hann er ótrúlega klár, Kunni alla stafina þriggja ára, lærði að lesa 5 ára og er snillingur í að leysa þrautir. EN hann er ótrúlega, ótrúlega LATUR. Stundum get ég svo gjörsamlega misst þolinmæðina á honum. Að taka til í herberginu finnst honum algjörlega ómögulegt svo annað hvort er þar umhorfs eins og eftir sprengingu eða ég tek til á endanum. Það tekur hann iðulega MJÖG langan tíma að klæða sig og matartímar fara stundum upp í klukkutíma bara af því að hann nennir ekki borða. Ég kann engin ráð til að fá hann til að gera hlutina á réttum hraða og stundum er þolinmæði mín alveg búin. En hann er svo sniðugur að maður gleymir alltaf að maður var reiður út í hann. Stundum er bara nóg að hann komi og segi "fyrirgefðu ég ætla að vera góður" og þá gleymist allt.

Alveg yndisleg þessi börn!!

Wednesday, September 21, 2005

Stutt vinnuvika. Fer á morgun á Flúðir á kennaraþing og því engin kennsla frá hádegi á morgun. Víííí. Ekki að það sé neitt meira spennandi að sitja einhverja fúla fyrirlestra. Verður samt forvitnilegt að fara á einn um jóga og slökun. Ekki veitir af að geta beitt svoleiðis brögðum þegar allt er orðið vitlaust í bekknum.

Á sunnudaginn var og mánudag héldum við upp á afmælið hans Daníels. Það þurfti auðvitað tvo daga í slíkan stórviðburð. Einn dag fyrir ömmur og afa og frændfólk og svo annan fyrir skólafélagana. Það þurfti auðvitað að bjóða öllum bekknum og ekki laust við að maður væri með kvíðahnút í maganum fyrir þá veislu. En þetta gekk bara vonum framar og þessir 17 gríslingar voru ekkert svo erfiðir. Vildi til að það var gott veður og mestu byssubardagarnir fóru fram utandyra. Kannski er maður bara orðinn svo sjóvaður í hávaða og látum!!

Hlakka samt til að eiga rólega helgi heima. Ekkert planað svo þetta verður bara fínt. Djammið verður klárað fyrir helgina svo fjölskyldan fær að njóta mín alla helgina!!

Wednesday, September 14, 2005

Undanfarnir dagar.....

Já já, nóg að gera allstaðar. Síðasta helgi var alveg brilliant. Hitti nokkrar af útskriftardömum frá Laugarvatni og Matta og Una voru búnar að skipuleggja heljarinnar prógramm sem dekkaði nánast allan laugardaginn. Þar á meðal var t.d. ratleikur í grasagarðinum, Baðhúsið, spil og singstar keppni. Alveg frábær dagur, takk fyrir mig (s)M(j)atta og (st)Una.

Á sunnudeginum fórum við Daníel að sjá Kalla á þakinu sem klikkaði auðvitað ekki. Síðan bauð Borghildur pænka okkur í kaffi sem klikkaði auðvitað ekki heldur, alveg dýrindis tertur ummm.

Frétti svo frá kennaranum hans Daníels að hann hafi verið hrókur alls fagnaðar í skólanum í gær þar sem hann mætti með leikskránna í skólann og sagði frá leikritinu og gerði sér svo lítið fyrir og söng uppáhlds lagið sitt úr leikritinu fyrir allan bekkinn sem telur sjö erindi. Já minn er sko ekkert að skafa utan af því!!

Er samt alltaf eitthvað svo þreytt þessa dagana, skil þetta bara ekki. Tek samt samviskusamlega inn lýsi og vítamín og er farin að hreyfa mig. Er bara alveg búin á kvöldin og sofna venjulega við sjónvarpið. Nirði finnst ég ekki skemmtileg eiginkona undanfarið. Veit samt ekkert hvernig ég á að hressa mig við, einhver ráð?

Sunday, September 04, 2005

Já já bara einhverjir þrjótar búnir að setja eitthvað rusl inn á commentin mín. Hélt að ég væri skyndilega orðin vinsæl!!!

Það er sko búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarið. Fékk þennan ansi fjöruga bekk og er búin að hringja fleiri símtöl í foreldra en ég gerði allan síðasta vetur. Gaman gaman. Er líka að reyna að vera dugleg og er farin að fara í ræktina, ekki veitir af að pústa örlítið út eftir daginn í vinnunni. Er búin að setja mér það markmið að um jólin verði ég að endurnýja allan fataskápinn vegna vöðvamassans sem ég verð komin með!!! he he

Er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að tíma að fara með Daníel á Kalla á þakinu þó ég sé blönk, geriri maður ekki allt fyrir þessi litlu grey???

Friday, September 02, 2005

AAaarrrggghhh.....

Er rétt búin að vera rúmlega viku í vinnunni og er strax farin að hárreita mig yfir því hvað börn geta verið óforskömmuð og illa upp alinn, það skal sko engin komast upp með þetta hjá mér.......meira um það síðar.