Monday, April 30, 2007

Vonlaust mál

Ég er í losti. Rétt áðan fékk ég svo mikla kvíða tilfinningu að ég var gráti næst. Heimapróf sem ég á að skila eftir viku og ég hélt að yrði svona 5-7 bls eiga víst að vera 20 bls. Ég er alveg miður mín því ég ætlaði að vera búin að þessu heimaprófi fyrir helgi. En ég á líka eftir að klára aðra stóra ritgerð og lesa fyrir eitt próf enn. Allt fyrir 10. maí. Mér finnst þetta hálf vonlaust eitthvað. Ég þarf á kraftaverki að halda!!!

Annars á Sævar vinnufélagi skilin tíu rokkstig fyrir að þagga niður í Kjartani Ólafssyni þingmanni í morgun. Grey kallinn ætlaði aldeilis að hala inn atkvæðum en Sævar var sko aldeilis ekki búinn að gleyma ummælum hans um kennara á alþingi. Prentaði herlegheitin út og bað Kjartan að lesa þetta upp á kaffistofunni. He he kallinn varð víst afar kindarlegur.

Svo á elsku mamma mín afmæli í dag. Til hamingju. Hún eyðir næstu ellefu dögum áhyggjulaus á ferð um meginland Evrópu. Á meðan ég sit heima í kvíðakasti!!!

Friday, April 27, 2007

Vangaveltur

Velti því fyrir mér af hverju varnarsamningurinn milli Íslands og Noregs var á ensku. Sá að Valgerður Sverris var að skrifa undir og hún hefur örugglega ekkert vitað hvað stóð í þessum samningi miðað við snilldar enskukunnáttu hennar. Af hverju var þetta bara ekki á norsku, hún á jú norskan mann, hefði örugglega skilið það betur.

Velti því líka fyrir mér af hverju tilvonandi tengdadóttir Jónínu Bjartmarz fékk ríkisborgararétt eftir aðeins fimmtán mánaða dvöl á Íslandi??

Velti því líka fyrir mér af hverju Sif getur ekki svarað skilmerkilega af hverju börn þurfa að bíða í eitt og hálft ár eftir plássi á BUGL. Hún var spurð tvisvar að sömu spurningunni og sama bull svarið kom tvisvar.....

Æ, nú er ég farin að hugsa of mikið!!!!

Sunday, April 22, 2007

Bjartari tímar

Jæja þá er nú þessu viðbjóðs verkefni lokið og ekki var það nú upp á marga fiska. En nú rúlla ég næsta verkefni upp sem verður heljarinnar ritgerð um þunglyndi barna og unglinga. Mér þykir það a.m.k. aðeins áhugaverðara efni.
Annars allt gott, Njörður aftur kominn heim úr útlegð og nóg af bjór í ísskápnum og nammiskápurinn fullur......en ekki lengi!!!

Góðar stundir.

Wednesday, April 18, 2007

Svoooo errrfittttt

Er nema von að maður standi á gati og finnist verkefni erfið þegar það koma fyrir orð í lesefninu sem þessi:

-félagslegur veruháttur
-formgerð sem formgerir
- habitus aðgreinir
-kynjahabitus
-kynjaður veruháttur

.....og þetta er bara byrjunin.
Ég skil ekki einu sinni þessi orð og hvað þá að ég skilji hvað ég á að gera við þau.

Sunday, April 15, 2007

Sjálfskaparvíti

Ég elska að kúra hjá börnunum mínum og hafa þau nálægt mér. Það er svo notalegt að halda utan um þau og finna hlýjuna frá þeim. Það er daglegt brauð á mínu heimili að þau komi bæði upp í á nóttunni og ef það gerist ekki vaknar maður með hnút í maganum og athugar hvort ekki sé í lagi með þau. En eins notalegt og þetta er þá er ég illa sofin. King size rúmið er ekki gert fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Nótt eftir nótt sef ég í einni klessu, með tvo gríslinga sitt hvoru megin við mig og báðir vilja þeir helst vera sem næst mér. Ég vakna illa sofin með hálsríg og öll skökk og skæld. Hvernig kemur maður sér úr úr svona vítahring. Daníel var reyndar orðinn nokkuð góður um daginn og farinn að sofa nokkra daga í einu í sínu rúmi. En svo veiktist hann og þá fékk hann að sofa upp í og núna getur hann ekki hætt því aftur.
Um daginn var ég að tala um þetta við Daníel, að þetta gengi nú ekki, hann ætii nú sitt eigið rúm til að sofa í og allt það. Þá Horfir drengurinn á mig með þessum fallegu augum sínum og segir: Já en mamma, það er bara svo rosalega gott að sofa upp í hjá þér!!!
Hvað getur maður sagt??

Monday, April 09, 2007

Gleðilega páska!

Þá er maður búinn að hafa það nokkuð þokkalegt undanfarna daga. Búin að borða fullt og fá smá páskaegg. Fá gesti og spila Catan sem maður mætti nú gera oftar. Daníel er reyndar enn lasinn. Búinn að vera ælandi þar til í dag en er orðinn mjög orkulaus og slappur. Mjóninn minn má nú ekki við því að fá svona drullupest því hann verður nánast að engu. Grannur er hann nú fyrir.

Á föstudaginn langa skelltum við okkur á ball. Það var nú meira fjörið. Ég hafði eiginlega mest gaman af vinkonu minni og samtarfskonu henni Bryndísi. Mikið vildi ég að fleiri yrðu svona fyndnir í glasi. Hún fór á kostum fyrir framan sviðið þegar hún tók skemmtilegan dans sem ég gæti ekki leikið eftir. Takk fyrir síðast Bryndís mín, þetta var bara gaman. Svo verð ég auðvitað að skella hérna inn einni mynd af mér og frægasta rokkara Íslands:



Jamm, lífið er yndislegt!!!

Wednesday, April 04, 2007

Nú er það svart

Helv. þvottavélin gaf upp öndina í morgun. Auðvitað þegar óhreini þvotturinn flæðir um allt hús. Er frekar pirruð.
Svo er Daníel minn lasinn, búinn að vera að æla í morgun og nú bara sefur hann. Þetta skinn, hann verður svo aumur þegar hann er lasinn.

Annars er þrusu ball í Ölfushöllinni á föstudaginn og við hjónin jafnvel að spá í að skella okkur. Maður fær sér auðvitað einn öl yfir x-factor fyrst og skellir sér svo á ball. Bara gaman.

Sunday, April 01, 2007

Hitt og þetta

Búin að velta því fyrir mér í dag hvernig dóttir mín verður eftir tíu ár. Tæplega fjögra ára er hún staðföst í því að heimurinn snúist bara um hana og verður kolvitlaus reyni maður að andmæla. Ég lifi í voninni um að hún sé að taka þetta út núna. Var sjálf ansi góð í gelgjunni og óska engu foreldri að glíma við þess konar hegðun. Á unglingsárunum fannst mér nefnilega að heimurinn ætti að snúast í kringum mig og varð brjáluð ef hann gerði það ekki. Fyrirgefðu mamma mín.

Var næstum búin að hlaupa 1. apríl þegar sonur minn tilkynnti að kötturinn hefði komið með dauðan fugl á pallinn. Trúði honum alveg en ákvað að láta húsbóndann sjá um að hirða hræið þegar ég fattaði grínið.

Fékk nett að vita af því að ég ætti sko ekki að vera að belgja mig út af ís þegar strákurinn í sjoppunni missti kortið mitt ofan í dýfu boxið. Var það kannski merki um að ég borða ekki nóg af súkkulaði. Hefði kannski bara át að sleikja kortið??