Wednesday, March 11, 2009

Nóg að gera á stóru heimili :)
Sólrún dafnar vel og hefur þyngst um tæplega hálft kíló á hálfum mánuði. Við erum aðeins farin að fara út í göngutúra og mikið hlakka ég til þegar fer að hlýna meira. Það er alveg komið gott af þessum leiðinda kulda. Það bólar ekkert á afbrýðisemi hjá stóru börnunum sem vilja sífellt vera að knúsast í systir sinni en kötturinn á heimilinu hefur hins vegar hagað sér mjög undarlega upp á síðkastið, spurning hvort afbrýðisemin hafi hlaupið í hann??
Annars bara allt í góðu og lítið annað að frétta.
Góðar stundir.

Monday, February 09, 2009

3. febrúar 2009

Jæja biðin varð þá ekkert endalaus eftir allt saman. Þegar litla daman ákvað að láta sjá sig gerðist allt á ógnarhraða. Ekki hefði mig grunað að hún kæmi á undan áætlun og var því búin að búa mig undir langa bið eins og áður en Jónína kom í heiminn.
Ég fann að ég missti vatnið um hálf eitt eftir miðnætti og hríðarnar byrjuðu svo um klukkutíma seinna. Ég hafði aldrei misst vatnið áður svo ég var alls ekki viss hvað ég ætti að gera. En svo eftir að hríðarnar byrjuðu gekk þetta allt frekar hratt og rúmlega hálf fimm fannst mér tími til komin að fara að koma sér á sjúkrahúsið, enda mátti ég varla vera seinni þangað.
Eftir að við komum á sjúkrahúsið á Selfossi leið ekki nema rúmur klukkutími þar til allt var yfirstaðið og daman fæddist 6:08 um morgunin. 3655 gr. og 52 cm. Það var búið að vera mjög mikið að gera á fæðingardeildinni og margar konur í sængurlegu svo okkur bauðst að fara heim samdægurs sem við auðvitað þáðum.
Stelpuskottið okkar dafnar svo bara vel, er dufleg að drekka og sefur vært þess á milli. Systkini hennar eru mjög montin af henni og eru afskaplega dugleg að hjálpa til við að sækja bleiur og annað sem vantar þá stundina. Hún er líka mjög lík systkinum sínum og okkur finnst hún auðvitað fallegasta stelpuskott í heimi.

Monday, February 02, 2009

Biðin endalausa

Já nú bíður maður bara og bíður. Ekkert annað að gera svo sem. Fjórir dagar í settan dag en ég geri alveg ráð fyrir að bíða eitthvað lengur en það. Krakkarnir eru orðnir mjög spenntir enda allt að verða klárt fyrir komu litla krílisins. Ég hlakka ekkert minna til að fá barnið í hendurnar enda orðin þreytt á að vera svona hlussa. Set meira hér inn um leið og eitthvað skemmtilegt gerist.
Lifið heil.

Thursday, January 01, 2009

Gleðilegt nýtt ár!!

Við erum búin að eiga alveg yndisleg jól og áramót með miklu áti og öllu tilheyrandi. Verstur er þó leiðindar brjóstsviðinn sem ég fæ af öllu þessu reykta kjöti sem maður er búinn að innbyrða. En maður lætur sig hafa það.

Börnin voru afskaplega ánægð með allar jólagjafirnar sem þau fengu. Jónína rúllar hérna fram og til baka á svaka fínum bleikum rúlluskautum (eða hjólum) með ógurlegum diskóljósum og Daníel er á kafi í Stórhættulegu strákabókinni.

Nú er bara rétt rúmur mánuður í að fjölgi í fjölskyldunni. Ég var orðin ansi þreytt á vinnunni fyrir jól og það var meira en kærkomið að komast í jólafrí. Ég er núna búin að hvíla mig svo vel að mér finnst ég vera orðin öll stíf og stirð eftir sófalegu og át. Langar mest að geta farið í góða göngutúra en helv. grindargliðnunin bíður ekki upp á mikið svoleiðis, verð örþreytt í grindinni eftir smá göngu. En ég þrauka þetta ;-)

Vonandi verður árið 2009 jafn gott fyrir okkur fjölskylduna og síðasta ár. Ég ætla mér ekki að láta kreppuna hafa mikil áhrif á mig þrátt fyrir að ég verði með lægri laun en ég hef verið með lengi. Ætla bara að njóta þess að vera með fjölskyldunni og gera skemmtilega hluti. Nota heita pottinn sem mest (er jú þegar búin að borga fyrir hann), nota fellihýsið okkar í sumar (er líka búin að borga fyrir það) og bara njóta lífsins :-)

Hafið það líka gott á árinu kæru vinir og takk fyrir gamlar stundir!!

Monday, December 15, 2008

Jólagírinn

Er ekki tilavalið að setja eitthvað hér inn svona eins og mánaðarlega??

Nú rembist maður við að klára allt fyrir jólin en það gengur svona upp og niður. Jólakortin ganga hægt og sígandi og jólagjafirnar koma svona hægt og hægt. Aðal málið fyrir þessi jól er þó að klára blessuðu eldhúsinnréttinguna. Við völdum kreppuleiðina og ákváðum að mála bara gömlu lúnu innréttinguna. Það kemur nú bara ágætlega út en gengur samt afskaplega hægt vegna plássleysis. Bara tvær til þrjár hurðar teknar í einu.

Meðgangan gengur líka bærilega. Er samt að kljást við leiðindar grindargliðnun sem ég hef ekki haft áður. Hlakka því mikið til að hætta að vinna og taka því rólega yfir daginn.

Annars bara allt annað með það sama. Góðar stundir.

Sunday, November 09, 2008

Gullkorn

Nú langar mig að setja hér inn nokkur gullkorn frá börnunum mínum.

Jónína vill alltaf hafa allt á hreinu og vill vita hvað allt þýðir ef hún heyrir orð sem hún skilur ekki. Stundum eru þetta orð sem mér finnast ósköp eðlileg en um daginn spurði hún mig hvað væri að vera skrámaður. Ég var ekki alveg með samhengið á hreinu og hélt hún væri að tala um mann sem væri að skrá!! Hún skildi auðvitað ekkert útskýringarnar mínar enda kom þetta úr sögu sem hún hafði heyrt og talað um mann sem var skakkur og skrámaður eftir einhverja erfiða meðferð!!
Um daginn var ég líka að skamma hana og sagði að hún væri bara óþekk stelpuskjáta. Þá horfði hún á mig spurnaraugum og sagði "hvað er skjáta?" Þá gat mamman auðvitað ekkert verið reið lengur.

Daníel er hins vega mikill spekingur og vill vita allt milli himins og jarðar. Hann kemur oft með mjög heimspekilegar spurningar og stundum er fátt um svör hjá foreldrunum. Hann spurði t.d. pabba sinn hvernig taugakerfi í köttum væri og hjá mömmunni vildi hann fá að vita allt um Kínamúrinn. Ég er afskaplega léleg í öllu sem tengist landafræði og því fátt um svör í það skiptið.

Wednesday, October 08, 2008

Fésbók

Ég er orðin mikill aðdáandi fésbókar og því ekki víst að ég nenni að rita nokkuð hér á næstunni.
Góðar stundir.