Monday, November 27, 2006

Humar, nornir og ammli

Þá er enn ein helgin liðin. Þessi var reyndar frábrugðin öðrum helgum þar sem ég lagði lærdóminn á hilluna og leyfði mér að slaka aðeins á. Var búin að vera í skólanum þrjá daga vikunnar sem var ansi erfitt og lýjandi. Sátum í tímum frá 8 til 5 og reyndum að innbyrða eins mikið efni eins og mögulegt var.

Á föstudagskvöld fór ég með vinnufélögunum á Fjöruborðið á Stokkseyri og áttum þar fína kvöldstund. Laugardagskvöldið var kannski ekki eins mikil slökun. Þá hitti ég dúllurnar mínar úr saumó og við héldum eitt allsherjar nornakvöld. Borðuðum góðan mat og drukkum enn betra vín og spáðum svo í spil og bolla. Yndislegt kvöld sem var allt of fljótt að líða. Vorum ekkert smá góðar í spádómunum og auðvitað erum við vissar um að það rætist allt saman. Á sunnudeginum fór ég svo þunn í afmælisveislu til Sigrúnar Maggýjar frænku minnar. Ekki það að það hafi bitnað neitt á henni að ástand mitt hafi ekki verið upp á marga fiska. Hinir fengu bara meiri sætindi!! En til hamingju með að vera orðin 5 elsku frænka.

Nú tekur hins vegar lærdómurinn aftur við. Á eftir að skila af mér 50% verkefni og fara í eitt próf. Hlakka mikið til þegar það verður frá, það er samt ekkert fyrr en 19. des sem ég verð búin. Enginn jólaundirbúningur á mínu heimili fyrr en þá. Enda nóg að horfa á nágrannana missa sig í ljósadýrð þangað til.

Friday, November 17, 2006

Sjálfboðaliði óskast

Ég óska eftir vandamálum, helst nógu stórum og víðtækum sem hægt er að ræða við mig sem ráðgjafa. Ekki verra ef vandamálið er námslegs eðlis og jafnvel ef einhver fjölskylduvandræði slæðast inn í. He he.
Nei í alvöru talað þá vantar mig einhvern sem vill ræða við mig um vandamál sín og það er tekið upp á kameru svo ég geti sýðan greint það og metið hvort ég sé að gera svona lagað rétt. Þetta er liður í verkefni í skólanum og þar sem ég gæti orðið námsráðgjafi í Háskólanum (kannski einhverntímann) er eins gott að æfa sig!! Vandamálið þarf að vera það stórt að það þarf að ræða það í tæpan klukkutíma!!!
Ég er í hálfgerðu sjokki yfir þessu verkefni því mér finnst þetta frekar erfitt. En endilega ef einhver þarna úti þarf á aðstoð að halda og treystir mér til að veita ráðgjöf þá er ég til!!!

Tuesday, November 14, 2006

Árni fer á þing, það er líka í lagi því hann gerði bara tæknileg mistök. Muahahaha.....það eru því engin mannleg mistök að draga að sér fé og koma þjóðareignum í persónuleg not. Nei, fyrir Árna Johnsen eru það tæknileg mistök. Hann gerði sem sagt ekkert rangt, því iðrast hann þá?? Yfir þeim tæknilegu mistökum að hafa reiknað sig rangt og var gripinn fyrir vikið?? Já heimur versnandi fer.

En snjórinn er horfinn, og ég er komin á nagla.

Wednesday, November 08, 2006

Og snjórinn kom

Vaknaði í morgun að allt var orðið fallega hvítt, afskaplega fallegt og rómó!!! Ekki eins rómó að skafa af bílnum í kuldanum og svinga svo um göturnar á leið í vinnuna því ekki eru naglarnir komnir undir sökum anna hjá húsmóðurinni. Ekki það að ég sé sjálf að fara að setja dekkin undir he he.
Annars allt við það sama....