Thursday, September 28, 2006

Á Blómstrandi dögum....



Fórum við Daníel í svifbrú yfir Varmá og Njörður grillaði!!!!

Tuesday, September 19, 2006

19.09.99

Daginn í dag á sonur minn. Þetta litla barn orðið 7 ára gamalt. Ja hérna, tíminn líður hratt.
Annars er allt gott að frétta, fer að líða að fyrstu skiladögum í háskólanum svo það er kominn nettur fiðringur í magann. Ekki mjög auðvelt að halda aga og reyna að lesa.
Vinnan gengur líka vel, kenni mjög skemmtilegum 7. bekk. Yndislegir krakkar. Svo er árlegt kennaraþing á Flúðum á fimmtudag og föstudag. Já nóg að gera. Jæja best að læra, læra.
Góðar stundir!!

Thursday, September 07, 2006

Að grípa boltann!

Fyrir ekki svo löngu heyrði ég því fleygt að maður ætti að grípa boltann þegar tækifærin birtast annnars grípur bara einhver annar hann. Í gær greip ég boltann.
Ég er sem sagt sest á skólabekk, í námi sem ég hafði áður fengið neitun um að ég kæmist ekki að því það var fjöldatakmörkun. 20 komust að en 50 sóttu um. Í gær fékk ég svo hringingu. Einhver hafði hætt við og ég var næst á listanum. Námið var reyndar þegar hafið en ef ég treysti mér til mætti ég mæta í það sem eftir var af staðbundinni lotu. Þetta er fjarnám í náms-og starfsráðgjöf og ég dreif mig af stað. Algerlega óundirbúin til að hefja nám en ákvað að láta vaða.
Húrra fyrir mér.