Sjálfsskoðun
Vetrarfríið rann í garð og jafnskjótt er það búið. Ég náði að vinna aðeins upp í náminu en þó ekki nóg. Það er eins og dagarnir séu sammála um það að líða bara nógu hratt hjá.
Undanfarnar vikur hef ég þurft að fara í gegnum ægilega naflaskoðun hjá sjálfri mér. Samkvæmt bókunum getur maður ekki gerst góður ráðgjafi nema þekkja sjálfan sig og sín takmörk út í gegn. Okkar líf einkennist svolítið af því hvernig við ólmst upp og úr hvernig samfélagi við komum. Ef við höfum alist upp við það að láta aðra stjórna okkur þá eru nokkuð góðar líkur á því að við höldum áfram að leyfa öðrum að stjórna okkur seinna meir. Það gæti líka orðið akkúrat öfugt. Að við viljum brjótast út úr þessari stjórnsemi og leyfum þá engum að stjórna því hvernig við förum að í lífinu. Hvora leiðina sem við förum þá einkennist hún að því hvernig við upplifðum æskuna. Þetta dæmi á nú ekkert sérstaklega við mig heldur er ég að reyna að koma frá mér hvernig við erum gerð. Það eru alltaf einhver viðhorf og gildi sem við lærum í gegnum lífið sem við erum tilbúin til að tileinka okkur seinna meir.
Ég t.d hélt að ég væri tiltölulega fordómalaus en komst svo að því að það er ég alls ekki. Þá er ég ekki að tala um fordóma gagnvart kynþáttum eða öðru slíku heldur er ég með fordóma gagnvart hegðun fólks. Ég er meistari í að dæma fólk án þess að líta mikið í eigin barm. Ég þoli t.d. ekki frekju og yfirgang og hitti ég þannig fólk er fljót að dæma það ómögulegt þó sjálf sé ég jafnvel með hina mestu frekju, ég sé það bara aldrei fyrr en löngu seinna.
Ég verð að læra að setja ekki út á ákvarðanir annarra því ég get ekki breytt því hvernig aðrir hugsa eða haga sér, fyrst verð ég að geta breytt minni eigin hegðun áður en ég fer að ætlast ti að aðrir geti breytt sinni hegðun.
Svo sem engin ný fræði en ég held að maður geri allt of lítið af því að skoða sig vel og vandlega til að sjá hlutina í nýju ljósi.
Ég er sem sagt á fullu í að taka sjálfa mig í gegn þessa dagana og vonandi verður það aðeins til batnaðar he he.
Lifið heil.
