Tuesday, January 22, 2008

Ætla ekki...

...að tjá mig um nýjasta meirihlutann í borginni, hristi bara hausinn.

Að allt öðru. Það er sem sagt loksins komið á hreint hvar ég mun eyða 20 tímum til að kynna mér stoðþjónustu fyrir námsráðgjafa. Ég ætla að heimsækja hann Mumma í Mótorsmiðjunni og kynnast því hvað verið er að gera þar. Eins og flestir vita þá fluttist Mótorsmiðjan að Efri-Brú eftir að Guðmundur í Byrginu þurfti frá að hverfa. Það verður mjög spennandi að sjá hvernig er verið að vinna þarna.

Svo hlakka ég ógó mikið til næstu helgi en þá verður Saumó dagurinn mikli. Við erum búnar að skipuleggja heilmikla dagskrá fyrir herrana okkar og það verður sko ekki leiðinlegt. En þetta er allt leyndó svo ég segi frá því seinna hvernig þetta gekk fyrir sig.

Það er gaman að vera til :)

Friday, January 18, 2008

Þetta er allt að koma

Allt bendir til þess að við séum að fara að koma fokheldu húsi í stand. Kallinn vill vera viss um að þetta gangi upp og er þvi ekki búinn að skrifa undir en munnlegar heimildir benda til þess að hann sé búinn að samþykkja þetta allt saman. Þetta er smá vesen þar sem hann ætlar að taka okkar hús upp í svo það þarf leyfi fyrir veðflutningi og slíkt. Tekur allt tíma.

Nóg annað svo sem að gera. Daníel er að fara að keppa á fimleikamóti í Laugardagshöll á morgun, svo erum við vinkonurnar að skipuleggja skemmtilegan dag með köllunum okkar um næstu helgi. Það verður óvissudagur hjá þeim og þeir vita ekkert. Ég þarf að skila 20 tímum hjá einhverri stoðþjónustu fyrir námsráðgjafa á næstu vikum en það er ekki einu sinni komið í ljós hvert ég á að fara svo þetta er eitthvað snúið.

Já og prófið sem mér gekk ekki svo vel í....8,5 í heildareinkunn er kannski ekki svo slæmt er það??? :)

Monday, January 14, 2008

Smá leiðrétting

Já alltaf nóg að gera hjá manni. Tinna systir var heldur fljót á sér að óska okkur til hamingju en þeir sem eru forvitnir mega vita það að við erum að gera tilboð í fokhelt hús. Ekkert klárt ennþá svo það er ekkert víst að þetta gangi upp. Maður er nú einu sinni búinn að hætta við á síðustu stundu svo það er ekkert öruggt í þessum spilum.

Dagurinn í gær einkenndist af þynnku og viðbjóði. Alltaf þegar ég verð svona þunn þá bara trúi ég því ekki að þetta geti verið þynnka og var alveg viss um að nú væri ég bara orðin veik. Komin með flensu eða eitthvað. En svo vaknaði ég auðvitað kát og hress í morgun svo ég verð að viðurkenna að ég hafi kannski drukkið helst til mikið á laugardagskvöldið.
Fór í bráðskemmtilegt ferstugsafmæli þar sem vínið flæddi og mikið stuð.

Pabbi minn á afmæli í dag húrra, húrra, húrra og ein samstarfskona mín og vinkona eignaðist dreng í morgun.

Lífið er yndislegt!!!

Sunday, January 06, 2008

Nýtt ár

Þá er allt að fara á fullt á ný. Maður er búinn að hafa það svo viðbj.slega gott að varla að maður komi sér af stað í hversdagslífið á ný. Síðasta önnin í náminu að hefjast og það verður svoooo gott að klára þetta. Ekki víst að maður nenni í meira nám á næstunni þó gott væri að klára allan masterinn. Sjáum til...

2007 var alveg mjög gott ár og því vona ég að 2008 verði jafnvel enn betra. Á síðasta ári stendur upp úr Svíþjóðarferð sem við fjölskyldan fórum í og einnig Hollandsferð með vinnunni sem var líka afskaplega vel heppnuð. Njörður smíðaði sólpall sem á eftir að nýtast vel ef veður leyfir. Við fórum í útilegur og brölluðum margt skemmtilegt með vinum og stórfjölskyldu. Áramótin voru svo haldin í mikilli gleði hér heima með tilheyrandi matarboði og skemmtilegu frussi flugelda. Við Tinna lukum svo kvöldinu með svaðalegri Singstar keppni en það skal ósagt látið hvor okkar vann. (Tek það fram að Tinna hefur það forskot að vera búin með nokkur stig í söngskóla plús að eiga diskinn sem hún var búin að æfa heima villt og galið!!!) En þetta var hörð keppni :)

Strengdi svo sem ekkert áramótaheit en alltaf gott að ætla að gera betur og vera betri manneskja á nýju ári, eða hvað!!