Best að láta vita af sér
Takk fyrir allar góðu kveðjurnar á þriðjudaginn var. Eins og þið vitið þá yngist ég alltaf um eitt ár hér eftir.
Átti erfiða skóla-helgi síðustu helgi. Hlakka því mikið til að geta sofið út á laugardag. Er að rembast við að koma mér áfram í verkefnum. Svolítið erfitt þar sem flest verkefnin ganga út á að vinna með atvinnulausa einstaklinga og erfitt að finna tíma til að hitta svoleiðis fólk. Vinn samt best undir álagi svo þetta er allt að koma.
Tók út hjólið um daginn og ætlaði að vera svooo dugleg. Eftir nokkra metra var ég kominn með andarteppu og löðrandi sveitt hamaðist ég við að útiloka þreytuverkina í fótunum. Skildi ekkert í hvað þetta var erfitt. Sat kófsveitt og illa lyktandi á fundi. Hamaðist svo aftur heim þegar ég uppgvötaði að helv. hjólið er fast í þriðja gír. Lá í sófanum það sem eftir var dagsins og hef ekki hreyft hjólið síðan.
