Thursday, September 27, 2007

Hugur minn...

...hefur verið mikið til hjá fjölskyldu lítillar stúlku sem lést vegna alvarlegs sjúkdóms aðeins tveggja ára gömul. Ég hef hugsað mikið til þeirra og finn svo til með þeim að þurfa að ganga í gegnum þessa hluti. Ég var svo heppin að fá að hitta litlu skottuna og það snart mig djúpt að sjá þennan fallega líkama í svona erfiðu ástandi. Ég er samt svo ánægð með að Birna hafi boðið okkur skólasystrum sínum í heimsókn í vor og leyft okkur að fylgjast með gangi mála. Það er ekki hægt að setja sig í svona spor. Megi allir góðir straumar styrkja þessa fjölskyldu í baráttunni við sorgina.

Wednesday, September 19, 2007

Daníel...

... á afmæli í dag. Vorum samt búin með veisluhöld, kúturinn fær bara að velja kvöldmatinn í dag. Finnur á líka afmæli. Til hamingju með daginn!!!

Monday, September 17, 2007

Ég var búin að gleyma....

...að þegar ég var í kennó átti ég aðdáanda. Strákgrey sem er talsvert fatlaður og sjálfsagt þroskaskertur að einhverju leyti. Hann var voðalegt krútt svona í fyrstu og þó ég segi sjálf frá var hann afskaplega skotin í mér. Oft þegar hann hitti á mig í matsalnum eða á göngunum þá fékk ég þessi yndislegu blíðuhót og faðmlög. Hann vissi hvað ég hét og kallaði á mig af löngu færi. Stundum vildi hann halda í hendina á mér í matsalnum. Voða sætt, eða þannig því ég var orðin heldur þreytt á honum í lokin, þá var hann eiginlega farinn að ofsækja mig.
En það sem sló mig mest í morgun var að ég var búin að steingleyma honum. Þ.e. ég fattaði það þegar ég mætti honum á göngum kennó í morgun þar sem hann skakklappaðist áfram. Held hann hafi verið búinn að gleyma mér líka, enda nóg af kvenfólki til að góna á í Kennaraháskólanum. Skrítið samt hvernig fólk getur þurrkast út úr mynninu hjá manni. Og það svona sérstakt fólk. Kannski ég hafi blokkerað hann af ásettu ráði, enda var hann orðinn heldur uppáþrengjandi í lokin.

Annars allt gott. Helgin var mjög annrík. Fór í mjög skemmtilega og öðruvísi útskriftarveislu á laugardagskvöld. Fékk þessa fínu snyrtikynningu ásamt kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins. Samt frekar undarleg staða að sitja svoleiðis kynningu með tengdamóður sinni og mágkonum. Héldum svo afmælisveislu fyrir Daníel á sunnudeginum. Vorum svolítið lúin á eftir þar sem þetta var tvöföld veisla. Fyrst bekkjarfélagarnir og svo fjölskyldan. En þetta gekk allt mjög vel og sonurinn himinlifandi í lok dags. Takk fyrir komuna og drenginn.

Tuesday, September 11, 2007

SVO LÖÖÖT

Það er að hellast yfir mig einhver leiðinda leti þessa dagana. Nenni ekki neinu. Svo er ég svo gleymin. Þvottavélin er að þvo sama þvottinn í þriðja sinn.
Gleðst yfir haustinu. Langar til útlanda. Vont að vera kennari þegar mann langar í haustferð erlendis.
Verð að fara að byrja að læra, er ekki byrjuð og senn líður að heimaprófi. Þar kemur letin aftur. Held bara að sumarfríið hafi verið of gott. Eða nei kannski ekki of gott, bara of mikið að gera núna. Svo erfitt að koma sér að verki.

Thursday, September 06, 2007

Góður dagur á morgun

Það er góður siður að slaka á yfir einum bjór með vinum og vandamönnum. Það geri ég alltaf einu sinni í viku. Í síðustu viku missti ég af fjörinu svo ég hlakka enn meira til núna.
Mér finnst bjór góður.
Skál!!!