Jónína á afmæli í dag!!!
Dagurinn í dag var tileinkaður henni Jónínu minni. Þó ekki þeirri litlu heldur vinkonu minni til margra ára. Hún á afmæli í dag og bauð mér því í mat í kvöld. Takk fyrir mig.
Annars hefur ansi margt gengið á hér á bæ. Hitavatnskútrinn hjá okkur fór í skrall og við sáum fyrir okkur svimandi há útgjöld til að kaupa nýjan. Tengdó reddaði þó málunum og fixaði saman einhvern lítinn kút við okkar svo vonandi verður hægt að notast við það í nokkur ár. Þegar það var svo í höfn klesstist bíllinn okkar lítillega þegar minn ástkæri eiginmaður gleymdi því að hann væri með kerru aftaní og bakkaði frekar glannalega. Ég gat nú eiginlega ekki annað en hlegið og þakkað mínum sæla fyrir að það var ekki ég sem bakkaði....
í gær gæsuðum við Hildigunni. Það var alveg frábær dagur, við byrjuðum á hádegi og skelltum okkur í Bláa lónið. Svo var brunað í tívolí þar sem ég hélt að við hefðum gert út af við aumingja gæsina. Fórum í sveiflutækið stóra og Hildigunnur trylltist gjörsamlega og gargaði og gólaði og var viti sínu fjær úr hræðslu. Ég reyndi að kalla til hennar að hún ætti að loka augunum og reyna að slaka á. Hún gerði það og ég sver að þá hélt ég að það væri liðið yfir hana í tækinu. Hún var síðan mjög lengi að jafna sig og var óglatt í lengri tíma á eftir. Við Bára skelltum okkur svo saman í kúluna sem var alveg frábært.
Eftir þetta var síðan brunað á Selfoss og farið út að borða á Menam. Rosa góður matur og við vorum eiginlega alalr búnar á því eftir matinn og öll orka farin úr liðinu enda búnar að vera að síðan á hádegi. Enduðum heima hjá Gæsinni í rólegheitum eftir meiriháttar dag.
Fyrirhugaðri ferð á Fimmvörðuháls var frestað þar til 6. ágúst svo Sigrún og Jói geti komið með okkur. Ef einhver vill koma með þá endilega hafa samband.
Þar til næst.......
