Wednesday, April 26, 2006

Hlaupabóla-bóla-óla-la-a

Það brast á með hlaupabólu á mínu heimili um síðustu helgi og ég því verið sambandslaus heima með ekkert net og bilaða tölvu. Algjörlega sambandslaus við alheiminn. Ekki laust við að manni finnnst maður vera hálf umkomulaus og einmanna þegar maður situr í marga daga heima með enga tölvu. Hvernig fór fólk að fyrir nokkrum árum?? Ja maður spyr sig!!

Wednesday, April 19, 2006

Ekki dauð enn.....

Ég er ennþá lifandi eftir för mína á vinstri í Skotlandi og Englandi. Það er reyndar tölvan mín sem er búin að vera dauð síðan ég kom heim og því hefur ekkert heyrst frá mér.
Ég sem sagt settist galvösk upp í þennan fína Bens um leið og ég kom til Glasgow þann 7. apríl. Keyrði eins og herforingi og ekki flautað nema tvisvar á mig á einhverjum hringtorgum. Tek það samt fram að ég fór réttu megin inn í hringtorgin he he. Við Olga keyrðum síðan í ömurlegu veðri til Harrogate og þegar við höfðum komið okkur fyrir á þessu yndislega hóteli sem við fengum vorum við afskaplega þreyttar eftir ferðalagið og sofnuðum yfir breskum slúðurblöðum.

Mættum svo galvaskar á ráðstefnu daginn eftir og það var sko úr nógu að velja. Fjórir dagar stútfullir af fróðleik.
Á mánudeginum ákváðum við að stinga af eftir hádegi og keyrðum til York sem er afskaplega fallegur eldgamall bær. Þar fengum við mjög gott veður og notuðum tíman vel og skoðuðum okkur um. Þetta er mjög sögufrægur staður með um 1000 ára gömlum varnarmúr í kringum miðborgina og eldgömlum kastalabyggingum. Fengum okkur far með einum af túristabössunum svo við gætum gleypt í okkur alla söguna. Mæli hiklaust með ferðalagi um þessar slóðir enda afskaplega fallegt og skemmtilegt.
Á kvöldin var svo farið á veitingastaði og á pöbbarölt. Við vorum samt aldrei mjög lengi að enda hálf lúnar á kvöldin eftir endalausa fyrirlestra.

Heimferðin gekk síðan vel. Olga æfði sig í akstrinum á leiðinni til Glasgow og hún stóð sig alveg stórvel. Við lögðum snemma af stað á miðvikudagsmorgninum til þess að hafa smá tíma í Glasgow og nýttum þann tíma vel . Náðum að kíkja í svona þrjár af þessum fimm búðum sem eru þarna í borginni he he.
Svo var nú afskaplega gott að koma heim og knúsa fjölskylduna, hef aldrei hlaupið svona hratt í gegnum fríhöfnina og verið svona fljót að velja mér nammi!!!

Er svo búin að slappa vel af það sem eftir var af páskafríinu og mætt aftur galvösk í vinnuna, stútfull af nýjum hugmyndum. Ætla að hafa að leiðarljósi það sem einn fyrirlesarinn sagði á síðasta fyrirlestrinum mínum. "Love your job" enda ef maður gerir það ekki í þessu starfi þá er ég örugglega ekki á réttri hillu.

Tuesday, April 04, 2006

Ég er búin að vera afskaplega löt við að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa eitthvað. Er ekki alveg í stuði þessa dagana.
En nú er að lifna yfir mér aftur. Alveg að koma páskafrí og aðeins tveir og hálfur kennsludagur þar til ég sest upp í flugvél og flýg á vit ævinrýra í Englandi. Verð vonandi orðin góð í vinstri akstri eftir 800 km. keyrslu. Já svei mér ef ég er ekki bara farin að hlakka svolítið til.

Um helgina gerði ég smá tilraun til að eyða gjafabréfum sem ég fékk í afmælisgjöf. Það gekk eiginlega ekki alveg nógu vel. Er það ekki merkilegt þegar maður á nóg af pening þá bara finnur maður ekkert sem hentar. Keypti mér samt 66°norður peysu sem mig hefur langað í lengi.
Ég þarf að fara aðra ferð við tækifæri, það verður samt örugglega ekkert fyrr en eftir páska.

Ein fyndin saga af dóttur minni í lokin. Hún er orðin svo mikil dama að hún er orðin kjólasjúk. Hún neitar að fara í allt annað en kjól þegar hún vaknar á morgnana og vill líka sofa í sömu kjólunum. Þegar hún fær ekki vilja sínum framgengt leggst hún í gólfið og gargar. Skemmtilegt fyrir foreldrana. Ekki nóg með að hún vilji bara vera í kjól heldur heimtar hún líka að fara í allt of litla kjóla sem pössuðu á hana síðasta sumar og hún eins og strengdur köttur þegar hún er komin í þá. he he frekar fyndið. Ég sé fram á að þetta verði kjólasumarið mikla ef þetta heldur svona áfram.