Friday, July 27, 2007

27.07. 2007

Daginn i dag a yndid mitt hun Jonina. Fjogur ar eru lidin sidan eg fekk tessa skottu fyrst i fangid. Vid heldum reyndar sma afmalisveislu i fyrradag a medan danska fjölskyldan var enn hja okkur en thau foru i gaer. Thad vard reyndar half tomlegt hja okkur eftir ad thau foru thvi thad er buid ad vera mikid fjör og margt buid ad gerast.

Verd ad segja ykkur betur fra thessu öllu seinna thvi nu er verid ad reka a eftir mer. Allir a leidinni ut ad gera eitthvad skemmtilegt.

Thar til naest, godar stundir.

Wednesday, July 18, 2007

Sweden

Tha erum vid komin til Södertälje sem er litill baer sunnan vid Stockholm. Mjog fallegt hverfi og fint hus sem vid erum i. Kirsuberjatre i gardinum sem haegt er ad borda af og epla og perutre, en tau eru ekki ordin troskud. Folkid sem vid skiptum vid er alveg yndislegt og vid erum viss um ad tetta er malid i komandi ferdalogum. Tau voru buin ad troda ut isskapinn af mat svo vid hofum varla turft ad kaupa i matinn. Hanna og Finnur koma a morgun svo tad verdur fjor i baenum. Vid hofum tvo bila til umrada og annar teirra er 8 manna svo Hanna og Finnur geta notad hinn bilinn. Vid aetlum okkur ad skoda mikid svo tad verdur stift programm, en eg held ad tetta verdi bara gaman!!
Sael ad sinni.

Saturday, July 07, 2007

Það kom að því...

... að einhver vildi koma og skoða húsið okkar. En þar sem pallurinn er að verða klár og allt að verða svo fínt nenntum við ekkert að standa í þessu. Sögðum fasteignasalanum að við værum hætt við allt saman og hann mætti taka húsið af sölu. Enda ekkert annað til sölu sem freistar okkar. Draumahúsið í Dynskógum hvort eð er farið.

Rétt rúm vika í Svíþjóð. Erum búin að vera í góðu sambandi við fólkið sem við skiptum við og þetta lítur allt ljómandi vel út. Þau vilja allt fyrir okkur gera til að gera dvölina sem besta og vonandi á þeim eftir að líka vel að vera í Hveragerði. Hanna, Finnur, Baldur Freyr og Ásta Lísa ætla að koma til okkar frá Danmörku og dvelja í a.m.k. viku í Sodertelje (eða hvað þessi bær nú heitir). Hlökkum til að hitta ykkur!! Þau sænsku ætla að búa sérstaklega um þau í kjallaranum þar sem þau hafa allt til alls. Ekki leiðinlegt.

Ef þetta á eftir að ganga vel er alveg pottþétt að við förum þessa leið við skipulagningu sumarfrís aftur.

Suamr og sól, lifið heil.

Monday, July 02, 2007

Allt með það sama og maður heldur áfram að njóta þess að vera í fríi. Við erum m.a. búin að :


- Fara í útilegu

- Horfa á Daníel spila fótbolta í hífandi roki

- Myndast við að smíða pall

- Brunnið í sólinni

- Fengið sólarexem

- Mokað og mokað sem mér finnst afskaplega leinlegt

- Farið í sund

- Slappað af


En nú er pallurinn allur að myndast svo það verður notalegt að vera þar í góðu veðri. Svíþjóð eftir tvær vikur. Gaman, gaman.