Tuesday, December 25, 2007

Jól í Hveragerði



Gleðileg jól og farsælt nýtt ár öll saman. Takk fyrir innlitið á síðuna mína.




Sunday, December 23, 2007

Kartafla í skóinn

Í nótt kom Kjetkrókur og gaf dóttur minni kartöflu í skóinn. Hún var svo sem ekkert fúl yfir því, fannst þetta bara frekar sniðugt.
Annars allt gott, allt á fullu við þrif og skreytingar og svo SKATA á eftir UMMMMMM!!!!!

Monday, December 17, 2007

Ég er sú sem...

...tók próf og gekk ekki nógu vel :(
...er ánægð með að prófinu sé lokið þrátt fyrir allt.
...fór í jólagjafaleiðangur og brann yfir á kortinu.
...fór á Frostrósartónleika og fékk jólaandann yfir mig.
...fer alveg að komast í jólafrí.
...keyri um ljóslaus að aftan.
...hlakka mikið til jólanna.

Thursday, December 13, 2007

Próf - próf

Þá er upprunninn síðasti lestrardagur. Próf eftir hádegi.
Verð að segja að próf hafa aldrei verið mín sterka hlið. Gengur afar illa að festa svona marga mikilvæga þætti í langtímaminninu. Það fer mér betur að gera stór verkefni þar sem ég þarf aðeins að vita hvar ég á að leita að upplýsingunum.
En þar sem ég er nú að læra að verða námsráðgjafi verð ég að nota alla helstu námstækni og prófatækni sem ég er búin að vera að kenna nemendunum mínum í vetur. Samt auðveldara að kenna þetta en tileinka sér þetta sjálfur he he. Aðalatriðið að hugsa jákvætt :o)

Annars voru nú meiri djöfuls lætin í veðrinu í nótt. Njörður var svo hræddur um að allt væri að fjúka úti að hann stökk á fætur um tvöleytið til að gæta að hlutunum. Það er nefnilega enn allt fullt af spýtnadrasli í garðinum því það er ekki enn allt tilbúið sem þarf að laga. Það var reyndar allt í lagi með allt hjá okkur og trampolínið enn á sínum stað, vel bundið.

En best að lesa einu sinni enn yfir helstu glósurnar. Kl. hálf fimm í dag er ég frjáls!!!!

Monday, December 10, 2007

Do not disturb

Er að reyna að læra. Ekki trufla mig.

Tuesday, December 04, 2007

Þá eru verkefnaskil að baki og aðeins eitt próf eftir. Jiibbbííí. Síðasta helgi var því ansi ljúf. Fór í skemmtilegt jólaglögg án samviskubits og það var bara ofsalega gaman. Úthaldið var þó ekki mikið og ég farin að geispa upp úr miðnætti. Jónína og Viðar voru ekkert smá dugleg í heimagerða konfektinu svo aðrar eins kræsingar hef ég ekki séð lengi. Mmmmm það var líka svaðalega gott!!
Það er samt örugglega öllu þessu konfektáti að kenna að ég braut endajaxl en má ekki vera að því að fara til tannlæknis. Er líka með tannlæknafóbíu á háu stigi svo þetta verður ekki auðvelt. Þarf samt að skrattast sem fyrst. Fæ í magann við tilhugsunina.
Á næstunni er svo bara meira glögg á milli þess sem ég les undir próf. Er að reyna að hemja mig með jólaskrautið rétt á meðan þó það gangi ekki sem allra best.