Thursday, June 30, 2005

Ljúfa sumarfrí

Dagarnir hafa verið ansi rólegir og tíðindalitlir undanfarið. Allir fjölskyldumeðlimir komnir í sumarfrí og vikan hefur verið ósköp róleg. Hitti þó nokkrar af Laugarvatns gellum síðasta sunnudag sem var frábært. Er nú alveg ákveðin í því að heimsækja Ágústu mína áður en hún flýr eitthvert lengra.
Nú bíð ég bara spennt eftir Danmerkurferð, þurfum að vakna kl. 4 aðfaranótt föstudags til að vera tímanlega á ferðinni. Daníel auðvitað spenntastur af öllum og telur niður dagana. Er varla búinn að opna augun á morgnana þegar hann segir okkkur hversu margir dagar eru eftir. Frekar fyndið.
Næ vonandi að skrifa eitthvað í ferðinni.
Þar til næst, lifið heil!!!

Thursday, June 23, 2005

Dagurinn í gær...

var dagur jarðaberja og kampavíns. Í gær áttum við Njörður nebblega brúðkaupsafmæli. Okkar þriðja brúkaupsafmæli og það fyrsta sem við mundum bæði eftir!! Fyrsta brúðkaupsafmælinu gleymdum við sökum anna í íbúðamálum, vorum bæði að selja og kaupa og allt það og í fyrra man ég bara ekkert af hverju það gleymdist. Held það hafi bara gleymst í þessu venjulega amstri dagsins. En í gær mundum við bæði eftir deginum. Ég ákvað að elda ógurlega góðan mat í tilefni dagsins og Njörður kældi kampavín og keypti jarðaber. Leit út fyrir ógurlega rómantískt kvöld....... það fór samt á allt annan veg. Okkur var boðið í mat til tengdó þar sem týnda systirin að austan var í heimsókn. Það var mjög gaman og áttum við ljúfa kvöldstund með þeim. Þegar heim var komið taldi minn ástkæri eiginmaður að ég væri búin að drekka nógu mikið af rauðvíni um kvöldið og hætti við kampavínið. Fannst greinilega ekki viðeigandi að hafa eiginkonuna of mikið við skál á þessum yndislega degi. Dagurinn var samt ógurlega góður og litlu hjónin í Hveragerði fóru sæl að sofa.......
Hefði samt átt að borða jarðaberin í gærkvöldi því þau voru orðin úldin í morgun!

Monday, June 20, 2005

Helgin var alveg frábær. Eyddum 17. júní í blíðunni í Hveró og um kvöldið brunuðum við svo í Laugarás með tjaldvagninn. Ég hreint elska þennan tjaldvagn, svo miklu skemmtilegra en að kúldrast í tjaldi þó það hafi líka stundum verið gaman. Laugardagsmorgninum var svo eytt í sólinni og nú lít ég út eins flott amerísk klámmyndastjarna, þ.e. súkkulaðibrún með skjannahvít brjóst!!! He he. Seinna um daginn kom svo nánast allur saumaklúbburinn ásamt fjölskyldum og úr varð alveg ærleg veisla. Auður þú misstir af miklu, engin afsökun fyrir fjarveru :-) Verð eiginlega að setja inn myndir frá kvöldinu þar sem portrett myndir voru allsráðandi. Je minn hvað við vorum fyndin þegar við tókum af okkur myndir vera að hrista hausinn eins og asnar. Ógurlegar ljósmyndafyrirsætur. He he he he
Annars er ég bara farin að telja niður í Danmerkurferð sem farin verður 1. júlí. Þar sem ég hef ekki stigið fæti mínum út fyrir Íslandsstrendur síðan hina ógleymanlegu útskriftarferð 1996 er ég farin að hlakka mikið til þó þessi ferð verði nú mun fjölskylduvænni en sú síðasta.
Meira næst, góðar stundir.

Wednesday, June 15, 2005

Þá er sumarfríið loksins byrjað. Þar sem mér hefur alltaf fundist allt of gott að sofa tek ég þetta auðvitað með trompi og sef og sef og sef......Er reyndar hálf úldin í dag eftir að hafa sofið í þrettán tíma. Vakanaði reyndar eftir átta og fór með börnin í dagvistun fór svo heim og fékk svona "sofa endalaust" kast. Held að það sé kominn tími til að rífa sig upp og fara að gera eitthvað.
Komst ekki í útilegu um síðustu helgi eins og mig langaði svo óskaplega, tjaldvagninn í einhverju skralli en nú er búið að laga hann svo vonandi kemst ég eitthvað þá næstu.
Njörður vann hálfan rauðvínspott svo nú get ég farið að brosa aftur :o)

Wednesday, June 08, 2005

Árshátíð og gleði framundan

Bara dagurinn í dag og morgundagurinn eftir. Á morgun er svo árshátíð skólans í Skíðaskálanum. Var að hugsa um að slá í gegn með stórkostlegu skemmtiatriði en ég er alltaf svo mikil hetja í huganum að ég þori ekki að setja neitt svona sniðugt í framkvæmd. Er samt með fiðring í maganum yfir því að leyfa athyglissýkinni aðeins að njóta sín. Þoli ekki þetta að langa alveg ofsalega en þora ekki.
Þar sem Njörður hafði unnið svo margar rauðvínsflöskur í pottinum í vinnunni ákvað ég að gefa honum vínrekka í afmælisgjöf. Rekkinn var fljótur að fyllast og mér fannst þetta vera hið mesta stofustáss. Um síðustu helgi bauð hann svo vinnufélugunum í rauðvínspartý. Mér finnst rekkinn á stofugólfinu vera ansi tómlegur eftir þetta partý. Vinnufélugunum fannst bara gaman að koma í Hveragerði, rauðvínið hafði greinilega einhver jákvæð áhrif á hópinn þar sem nokkrar flóðgáttir opnuðust. Kannski er þetta bara ágætis vinnustaður eftir allt saman, ef allir væru bara alltaf aðeins í glasi.......
Núna er ég svo komin í sumargírinn. Langar í útilegu um næstu helgi.

Thursday, June 02, 2005

Ekki er ég nú neinn upprennandi bloggari. Hef ekki haft mikinn tíma. Allt að verða vitlaust í lokafrágangi fyrir skólaslit. Bara vika eftir ummm.
Annars búið að vera nóg að gera. Síðasta helgi var þéttskipuð og lítur út fyrir að næsta verði það líka. Var að koma úr vorferð í dag með skólakrökkunum. Fórum Krýsuvíkurleið að Kleifarvatni, stoppuðum í Herdísarvík og Strandarkirkju. Mjög fróðlegt allt saman. Frábært veður fyrir svona ferð og krakkarnir böðuðu sig í Kleifarvatni og svo aftur í sundlauginni í Þorlákshöfn. Þetta tókst allt mjög vel og börnin til sóma.
Finnst mjög sorglegt að vera ekki að kenna þessum krökkum á næsta ári........