27.07. 2006

Daginn í dag á hún skotta mín hún Jónína. Hún fékk hjól frá okkur í afmælisgjöf og ég því búin að hlaupa út um allt á eftir henni í morgun. Til hamingju með daginn Jónína mín.
Annars er það að frétta að ég skrapp til hennar Ágústu minnar um helgina. Það var alveg yndislegt og gaman að lenda í svona góðu veðri. Ég fékk reyndar aldrei farangurinn minn þegar ég kom út svo ég var eiginlega allslaus þegar ég mætti á svæðið. Ekkert sem nokkrir bjórar gátu þó ekki lagað he he. En farangurinn skilaði sér aldrei svo ég mátti bara sækja hann á Keflavíkurflugvelli þegar ég kom til baka.
En þrátt fyrir þetta átti ég skemmtilega helgi með mjög dramatísku picnici og flottasta almennings ferðaklósetti sem ég hef augum litið, gjörsamlega marmaraslegið. Við álpuðumst nefnilega inn á VIP svæði á útitónleikum sem við vorum á og það er greinilega gerður mannamunur á Jóni og Séra Jóni á slíkum stöðum. Já bara gaman að þessu. Svo skoðaði ég miðborgina og verslaði pínulítið í steikjandi hita og sól. Gæti alveg gert þetta aftur.

5 Comments:
Til hamingju með litlu dúlluna - orðin svo stór og dugleg.
Er enn græn af öfund, mig langaði svo með þér til Ágústu. Ég reyni að fara seinna, í lok mjaltatímabilsins. Sjáumst kannski í Húrí fljótlega.
Til hamingju með dóttirina, maður þarf að fara að kíkja á ykkur, þetta er ekki hægt, maður sér ekki frændsystkini sín svo árum skipti.
Ég verð bara að bjóða ykkur í heimsókn þegar ég verð flutt í íbúðina mína ;)
Bið að heilsa liðinu
Kveðja Ingibjörg Ösp frænka
Hi Kolla
Your little one looks lovely in her pink fairy wings! And your boy looks like he's growing up fast. Hope you're all well. Lots of love from Emma and Christian
p.s. glad to hear you got your bags back:-)
Hæ - frábær síða og flottar myndir :) Til hamingju með litlu skottu - hún ætlar að verða alveg jafn "bleik" og frænka sín. Bestu kveðjur Rakel
Til hamingju með litlu dúlluna. Kíkji hérna oft inn og fylgist með ykkur :) Kveðja Steinunn Þuríður
Post a Comment
<< Home