Allt að gerast
Þá er Njörður orðinn formlega útskrifaður. Það átti sér stað síðasta laugardag og má því hér eftir kalla hann "Meistari Njörður". Ég var reyndar ekki viðstödd þessa skemmtilegu athöfn í Laugardalshöll þar sem var verið að útskrifa um 900 manns. Ég var nefnilega stödd í Borgarnesi að horfa á Daníel keppa í fótbolta. Njörður skrapp bara í bæinn á laugardeginum til að klára dæmið.
Annars gerðist ég svo djörf að panta mér miða til hennar Ágústu helgina 21.-24. júlí. Hlakka mikið til enda búin að ætla að heimsækja hana sl. tvö ár eða svo. Þetta verður því í þriðja sinn á stuttum tíma sem ég fer til Englands, en það er bara gaman því ég hef aldrei komið til Manchester fyrr.
Næsta helgi fer svo í að hugsa um einhverja blessaða Norðmenn sem ég lofaði að taka að mér í gistingu. Maður er orðinn svo mikill Hvergerðingur að við ákváðum að taka þátt í Norrænu vinarbæjamóti. Ég lét eiginlega plata mig út í þetta og held alltaf að ég sé svo sniðug. En núna er ég eiginlega farin kvíða ansi mikið fyrir að hafa eitthvað ókunnug fólk á heimilinu heila helgi og geta svo kannski ekkert talað við það. Það er bara eins gott að þetta sé skemmtilegt fólk.
Svo eigum við nú eftir að fara í a.m.k. eina almennilega útilegu. Vorum að hugsa um að fara inn í Landmannalaugar ef veðrið verður almennilegt, svo ef einhver vill koma með þá er það sjálfsagt.

5 Comments:
Til hamingju með Meistarann!
Gaman að þú sért að kíkja á hana Ágústu. Ætlarðu með Meistaranum eða bara ein og hvað og hvað?
Verið velkomin í heimsókn hvenær sem er.
Linda.
Til hamingju með Meistarann!
Gaman að þú sért að kíkja á hana Ágústu. Ætlarðu með Meistaranum eða bara ein og hvað og hvað?
Verið velkomin í heimsókn hvenær sem er.
Linda.
Ég ætla bara ein í smá húsmæðraorlof og hafa það gott. Kemurðu með??? Og já já ég á sko örugglega eftir að koma við hjá ykkur Linda mín þegar ég fer á flakk!!!
Æ ég var svo græn ég fattaði það ekki enn fannst ég kannast við nafni enn átti ekki von á Nirði þínum í þessu nafnakalli.
Ég var nefnileg viðstödd þarna þegar háskólinn útskrifaði, því ég átti eina frænku sem var að útskrifast úr háskólanum.Ef ég hefði nú tengt þá hefði ég nú notið þess að óska kappanum til hamingju. Só þá óska ég þér til haminju með Meistara Njörð og óska ykkur alls hins besta.
Kveðja Ásta Lóa
Ja til hamingju med manninn thinn, bestu kvedjur til hans.
Hlakka til ad sja thig min kaera...og vonandi helst vedurblidan en her eigum vid von a hitabylgju:-)
Agusta
Post a Comment
<< Home