Alveg að verða búið
Er að leggja lokahönd á frágang eftir veturinn. Finnst ansi skrítið að vera að fara í sumarfrí. ætla samt að hvíla mig vel því næsta vetur verður býsna mikið að gera. Er nefnilega búin að skrá mig í fjarnám í HÍ í náms- og starfsráðgjöf. Verður spennandi að leggjast aftur yfir skólabækur.
Ég er búin að fara í þriggja daga skólaferðalag með gríslingana mína. Það heppnaðist bara ljómandi vel og ekkert vesen á englunum mínum. Fórum á Snæfellsnes og í siglingu um Breiðafjörðinn. Ég verð svo aftur með 7. bekk næsta vetur svo allur undirbúningur fyrir svona ferð verður miklu auðveldari.
Annars er ég að fara með vinnunni í óvissuferð um hádegið. Veit ekkert nema við erum að fara í Borgarnes og komum ekki aftur fyrr en á miðnætti. Það verður þá fjör að mæta í vinnuna á morgun. Veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að klára vinnuna mína þar sem það er ekkert nema sukk og vesen framundan. Svo á morgun er víst eitthvað matarboð. Já já gaman að þessu!!

1 Comments:
Fortell, hvad var gert i Bgn? Frabært hja ther ad skra thig i frekara nam, hljomar mjøg spenno. Heyrumst i sumar!
kv. Svanhildur
Post a Comment
<< Home