Thursday, June 22, 2006

Sól sól skín á mig

Dagarnir bara fljúga áfram þrátt fyrir sólarleysið. Var svona u.þ.b. að gefa skít í aðhald í fjármálum og panta mér far til sólarlanda. En engillinn á vinstri öxlinni öskraði hærra en púkinn á hægri öxlinni og fjármálunum er borgið í bili. Væri samt orðin fjórfaldur milljónamæringur á einni viku ef marka mætti allan póstinn sem ég fæ. Mér finnst svo skrítið að fólk sé að gleypa við þessu, en af því að fólk trúir þessu þá heldur þetta áfram.
17. júní var skemmtilegur hjá okkur. Fórum í skrúðgöngu sem framan af var ekki mannmörg. Sátum yfir hátíðarhöldum og fengum auðvitað kaffi hjá tengdó. Svo komu gestir í mat til okkar og við grilluðum og spiluðum Catan langt fram á nótt. Yndislegt.

3 Comments:

At June 23, 2006 2:32 PM, Anonymous Anonymous said...

Trúir hverju - hvaða póst?!?!?

Kv,
Dísa

 
At June 25, 2006 4:23 PM, Blogger Kolla said...

Ég er endalaust að fá einhvern ruslpóst í tölvupósti um að ég sé búin að vinna í bresku happdrætti. Væri nú betra að hafa tekið þátt í þessu happdrætti. Svo á ég að senda allar upplýsingar um mig og bankanúmerið mitt ha ha yeah right!!

 
At June 26, 2006 7:21 PM, Anonymous Anonymous said...

og hvað, er Njörður orðinn formlega útskrifaður sagnameistari eða mun hann snúa sér alfarið að Catan (sem ég skil mjög vel)

 

Post a Comment

<< Home