Wednesday, July 05, 2006

Ljótasta sóltjald í heimi og norsk helgi

Það kom sól í einn dag. Ég ætlaði aldeilis að njóta hennar og mundi eftir forláta sóltjaldi sem ég hafði erft frá ömmu og afa. Ég hætti mér í hilluklifur og teygði mig í sóltjaldið sem hefur verið geymt í mörg ár í efstu hillu geymslunnar. Vel inn pakkað í fallegan bláröndóttan poka, svo ég hafði getið mér þess til að sóltjaldið væri eins á litinn. Þegar ég var svo komin út í garð og dró herlegheitin út úr pokanum blasti annað við. Ég dró út lengju af einhverju upplituðu appelsínugulu þunnu efni sem leit helst út fyrir að vera heimasaumað. Ég ákvað samt að láta á þetta reyna og klambraði þessu saman með miklum erfiðis munum því þetta fyrirbæri vildi alls ekki tolla upprétt. Þegar mér hafði svo tekist eins vel og hægt var leit þetta afar illa út, einhver upplituð efnisdula hékk þarna eins og ég veit ekki hvað og blakti fram og til baka. Ég ákvað að láta nágrannana ekki sjá hvað þetta leit illa út og var fljót að taka þetta saman aftur. Efast um að þetta aumingjans sóltjald verði nokkurn tíman sett upp aftur.

Annars gekk norska heimsóknin okkar vel. Ég hafði reyndar vonast eftir að fá fólk í yngri kantinum en það varð nú aldeilis ekki raunin. Það voru gömul hjón á ellilífeyrisaldri sem gistu hjá okkur í þrjár nætur. Þau voru samt alveg yndisleg. Töluðu einungis norsku og við sem héldum að við gætum notast við ensku. He he þetta var því svolítið fyndið en bara gaman. Orðaforðinn minn jókst örugglega um helming þessa einu helgi þar sem hann var nú ekki mikill fyrir.
Eftir tvö ár er svo vinarbæjamót í Finnlandi og auðvitað stefnum við þangað, þar ætti allavega að vera auðveldara að bjarga sér á ensku þar sem Finnar vilja heldur tala hana en sænsku sem er kennd í skólum. Ætli það sé ekki svipað og hjá okkur með dönskuna!!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home