Monday, June 12, 2006

Óvissuferðin...

...var alveg stóskemmtileg.
Við fórum í Borgarnes með viðkomu í bænum þar sem Guðbjörg bauð öllu liðinu í hádegismat í nýja pylsuvagninum sínum. Í Borgarnesi fórum við í Landnámssetrið og fórum yfir sögu landnámsins og sögu Egils Skallagrímssonar. Mæli alveg eindregið með þessari sýningu, hefði átt að vera svona þegar ég las Egils sögu á sínum tíma og féll held ég þrisvar he he. hefði kannski náð þessu strax hefði ég fengið þetta svona beint í æð.

Svo fórum við á Hvanneyri og þar tók á móti okkur hress kall sem fór yfir það helsta í sögu staðarins. Við skoðuðum búvélasafnið og fórum í sveitafitness. Síðan villtumst við aðeins og skoðuðum því alveg óvænt allan Skorradalinn. Enduðum síðan á einhverjum afdala veitingastað upp í sveit sem heitir Skessuhorn. Ég hafði aldrei heyrt um þennan stað en þetta er voðalega kósí lengst uppi í sveit.

Svo var auðvitað skrallað í rútunni og allir orðnir vel kenndir enda tókum við auka klukkutíma rúnt eins og áður sagði.

Á föstudaginn bauð svo okkar elskulegi skólastjóri öllum út að borða sem var voða gott. Gott að fá góðan mat í mallann eftir svona mikið skrall.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home