Sunday, July 16, 2006

Langþráðu Landmannalaugar


Þá erum við komin heim úr útilegunni. Þetta var bara ansi gaman þó rigningin hafi ekkert gefið sólinni eftir. Áttum skemmtilega helgi með Aðalheiði og Gumma í Galtalæk í byrjun og eftir það fórum við hringinn í kringum Mýrdalsjökul og jeppuðumst svolítið uppi á hálendinu. Mig var lengi búið að langa inn í Landmannalaugar og loksins var hægt að láta verða af því. Varð ekki fyrir vonbrigðum enda gjörsamlega yndislegt landslag og litirnir vaaáá.....
Ég skellti mér nú ekki í laugina í þetta skipti enda er ég þekkt fyrir að vera mikil kuldaskræfa og hitinn var nú ekki hár þrátt fyrir gott veður.
Svo er það bara Manchester, England, England á föstudaginn, trallalla.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home