Laugarvatn í Laugardal....
...lengi skaltu muna.
Já gamla góða Laugarvatn klikkar ekki. Fyrir þá sem ekki vita hélt ég upp á tíu ára stúdent um síðustu helgi og júbileraði á viðeigandi hátt langt fram á sunnudagsmorgun. Það var svo gaman, miklu skemmtilegra en fyrir fimm árum síðan. Það var borðað og dansað og sungið og allur gamli fílíngurinn rifjaður upp. Stigapartý og læti. Þó það sé kominn föstudagur er ég enn á rósrauðu skýi yfir þessu öllu saman. Já, svona ætti maður að gera oftar. Ég ætla meira að segja að gerast smá væmin og segja ykkur Laugarvatns dúllurnar mínar hvað mér þykir afskaplega vænt um ykkur og ég er sannfærð um það að þetta sé skemmtilegasti árgangur í manna minnum he he.
Hafið það gott og guð geymi ykkur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home