Þ - dagurinn
Já þá er stóri dagurinn runninn upp. Átti alveg yndislega afmælisveislu á laugardaginn. Suðræn stemming og ég skreytti húsið samkvæmt því. Pálmatré og blóm. Ekki laust við að mér líði svolítið eins og fermingarstelpu eftir öll herlegheitin. Takk takk takk fyrir mig.
Það er nú svolítið fyndið að vera orðinn þrítug því á mínum vinnustað líður mér eins og smástelpu. Hér er meira en helmingurinn af starfsfólkinu fólk á aldri við mömmu og pabba og endalaust að tuða yfir því að ég gæti nú verið dóttir þeirra og blírí blirí. Ég sé nú svo ung og allir vildu að þeir væru ennþá þrítugir he he. Já ég er semsagt ein af yngstu kennurunum hér.
Ætla samt að eiga notalegan dag í dag og elda mér eitthvað gott í kvöld og hafa það afskaplega notalegt.

9 Comments:
Til hamingju með daginn gamla mín, já þú ert allavega eldri en ég og ert gömul fyrir mér ;) En allavega hafðu góðan dag elskan mín :*
Til hamingju med daginn kæra vinkona. Vildi oska ad eg hefdi komist i gledskapinn, en thad fær vist ad bida betri tima.
kvedja fra Norge, Svanhildur
Síunga afmælismær
Til lukku með daginn.
Við verðum bara að trúa því að þetta sé bara betra héðan af.....
Ég ákvað alla vega, eftir nokkura ára kvíða og krísu vegna komandi 30 ára afmælis, að það væri betra að verða það en ekki!!
Vona að þú eigir góðan dag :o)
Kveðja,
Þórey Arna
Sael min kaera.
Innilega til hamingju med daginn. Thad thydir ekkert annad en ad vera jakvaed eins og Thorey Arna. Fegin ad vera a lifi! Hafdu thad sem allra best i dag og thad sem eftir er...
Linda sem enn er 29.
Jæja Kolbrún min það vill svo vel til að þú ert ein af þeim sem hefur fest þinn afmælisdag í minni mínu þrátt fyrir að ég reyni að gleyma svona dögum. En afþví að ég man þá vil ég bara endilega segja við þig TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, það er ekkert verra að vera teyja sig yfir á fertugsaldurinn til okkar hinna, he he. Þú veist að gömul vín verða betri með aldrinum og þannig er einni með mannfólkið, þú getur bara batnað hér eftir. :) :) :)
Njóttu þess sem eftir er dagsins
Jæja það eru víst að verða síðustu forvöð að óska þér til hamingju með daginn, amk ef að kveðjan á að koma á réttum degi;)
Þannig að til hamingju með daginn sæta stelpa og takk fyrir veizluna góðu á laugardaginn:D
Svava Dóra.
Elsku Kolla
Til hamingju med daginn!
knus og kossar fra Agustu og Andy i Manchester
Til hamingju með afmælið!
Til lukku elsku Kolla mín.
Hafðu það gott
Kv. Matta
Post a Comment
<< Home