Allt á fullu
Vikurnar bara renna hjá þessa dagana og allt búið að vera á fullu. Mér finnst ég varla stoppa heima hjá mér. Alltaf á fundum og vinnandi fram eftir.
Er núna að undirbúa veisluna mína fínu sem verður á laugardaginn og á von á fullt af fólki, gaman, gaman. Held bara að ég hafi ekki haldið almennilega afmælisveislu síðan ég var 14 ára. Þá var hún haldin í sjoppunni hjá mömmu og pabba. Allir fengu pylsu og ís og stelpurnar komu með köku sem þær höfðu sjálfar bakað. Þetta var rjómaterta og ég man hvað hún var góð.
Nei , þetta er ekki alveg rétt hjá mér því það var líka smá veisla þegar ég var 19 ára. Þá var kennaraverkfall og ég því heima á Tálknafirði. Það komu fullt af krökkum heim og það var ofslega gaman, öll gömlu prakkarastrikin rifjuð upp og mikið hlegið. Um haustið kynntist ég svo Nirði og þá var ekki aftur snúið..... he he nei bara grín. Allavega hef ég ekki haldið fleiri afmælisveislur síðan þá.
Já þetta voru svona smá endurminningar.
Góðar stundir.

3 Comments:
Hæ sæta. Af edlilegum astædum kemst eg ekki i gledskapinn a laugardaginn, vildi oska thess ad eg kæmist - hef ekki hitt ykkur svo lengi. Vona ad thu eigir frabæran afmælisdag og veislu og njotir thin vel.
Kvedjur fra Norge, Svanhildur
ps. Veit ad Magga kemst ekki til thin, kørfubolti i gangi. (e-d vesen med sameiginlegan post, thannig ad eg kem thessu a framfæri)
TIl hamingju með daginn þann 27 ;) Vona að hann verði mjög skemmtilegur og spennandi. Annars langaði mig bara að leyfa þér að vita að ég væri á lífi og kíki stundum hingað inn svona til að sjá hvernig frændsystkinin hafa það. Hafðu það gott á afmælisdaginn og njóttu hans vel
Kveðja Ingibjörg Ösp
Ég vona að þú eigir góðan og glaðan dag, en því miður kemst ég ekki í south vegna krankleika, og er að brjálast á því að hafa tærnar upp í loft. Til hamingju með STÓRA DAGINN.
Post a Comment
<< Home