Afmælismánuðurinn mikli
Það er ekki hægt að segja annað en júní sé mánuður frjóseminnar þar sem mars virðist vera aðal afmælismánuður ársins. Í mars erum við þónokkrar vinkonurnar sem eigum stórafmæli plús allir þeir sem eiga ekki stórafmæli. Fór í eitt afskaplega skemmtilegt hóf sl. föstudag hjá henni Ágústu minni en hún vissi ekki einu sinni af því að hún væri að koma til landsins þann dag. Andy fékk þó nokkuð marga plúsa í kladdann fyrir að koma henni svona á óvart.
Næsta föstudag er svo annað stórafmæli hjá henni Laufey og svo er öllum boðið í Heiðarbrúnina þar næstu helgi. Við þetta bætast svo nokkur barnaafmæli. Já nóg að gera.
Það er nú svolítið gaman af því að eiga heima í svona litlu plássi. Það spurðist eitthvað út að Njörður hefði gaman af pólitík og þá sérstaklega bæjarmálunum. En eitthvað virðist það nú vefjast fyrir fólki hvaða stefnu hann hefur tekið sér í þessum málum því bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin hér í bæ hafa boðið honum sæti á lista. he he frekar fyndið. Hann hefur samt ekki tekið neina ákvörðun um slíkt þó það sé spennandi. En ég er nú samt ógurlega stolt af manninum mínum þessa dagana.

3 Comments:
Vildi bara láta þig vita að ég ætla að koma í afmælið þitt ... ég get alltaf farið til London :-)
Hae Kolla min,
Mikid var frabaert ad sja ykkur a fostudagskvoldid, eg skemmti mer svo vel og var svo hissa ad kvoldid er i halfgerdri modu. Vonandi skemmtu thid ykkur vel. Og ja ad 11 ara barnapian hafi stadid sig...mer fannst thad svo fyndid thegar thid sogdud mer fra henni...
knus
Agusta
Vona að Njörður haldi tryggð við fyrri áætlanir um sérframboð Stjórnmálaflokksins!
Post a Comment
<< Home