Sweet London
Já það var sko gaman í London. Við Njörður fórum um allt og skoðuðum og skoðuðum. það var svolítið kalt en við vorum bara klædd eftir því. Ég varð alveg heilluð af þinghúsinu þeirra. Alveg mögnuð bygging og ég hefði þess vegna getað sest á gangstéttina og bara horft tímunum saman.
Við fórum á markaði sem voru mjög skemmtilegir og versluðum okkur sæta antík klukku. Á milli þess sem við skoðuðum borgina vorum við mjög dugleg við að finna okkur bari. Það var eiginlega svolítið fyndið að við það að setjast inn eftir langt labb og drekka einn stóran bjór vorum við farin að finna á okkur, en það var auðvitað bara skemmtilegt.
Við náttúrulega versluðum síðan frá okkur allt vit. Misstum okkur svolítið og visa reikningurinn eftir því......ehemm reddum því seinna.
Þegar kom að því að fara út að borða vandaðist málið aðeins því við vorum auðvitað dúðuð í flíspeysur og úlpur og með húfur. En okkur tókst þó að sigta út nokkra ágætis staði þar sem klæðnaðurinn var ekki aðal málið. Fórum inn á einn kóreyskan stað sem var mjög skemmtilegt því maturinn var eldaður á borðinu okkar. Við vorum líka svolítið kjánaleg með prjónana svo okkur var boðið að fá gaffla he he.
Nú er ég bara á fullu að undirbúa næstu ferð. Það er smá pappírsvinnsla í kringum það því við Olga erum að reyna að fá þetta allt saman niðurgreitt. Held að það hefjist á endanum. Við ætlum reyndar að taka bílaleigubíl og keyra öfugu megin!!!! Ég læt Olgu um það og hef fulla trú á henni.
Bestu kveðjur

0 Comments:
Post a Comment
<< Home