Tuesday, January 31, 2006

Janúar, febrúar.......

Þá er síðasti dagur mánaðarins runninn upp. Það er alltaf eitthvað svo gott þegar janúar er búinn. Þá styttist mun hraðar í vorið.
Ég fór í bráðskemmtilegt afmæli um helgina. Fanney átti afmæli og hélt ekki upp á það sjálf heldur var Árni búinn að skipuleggja fyrir hana surprise afmæli. Þið sem ekki sáuð ykkur fært að mæta misstuð sko af heljarins fjöri með innifalinni bíósýningu. Já það var sko öllu liðinu hent út í rigninguna og allir sendir í Selfossbíó þar sem horft var á myndskeið af lífi Fanneyjar. Ekkert smá gaman og toppurinn var þegar fullt af frægu fólki sendi henni persónulegar kveðjur. Já Árni og co voru sko aldeilis búin að leggja ýmislegt á sig enda skemmtunin eftir því.
við hjónin eyddum líka fullt af peningum um helgina. Brugðum okkur í bæjarferð og keyptum okkur nýjar flísar á forstofuna. Ætlum ekki að bíða eftir því að fá lögsókn frá einhverjum sem hrynur á hausinn á þessum klósettflísum sem eru nú þegar á gólfinu.
Svo keypti ég mér líka Catan!!! Nú eru allir velkomnir í heimsókn sem vilja spila við mig.
"Al gegt gan mar". (Þýðing fyrir eldri borgara: Alveg geðveikt gaman maður)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home