Vantar snjó
Já svei svei það er bara kominn 9. jan. áður en maður snýr sér við. Það er svo sem ekki mikið búið að gerast hjá mér síðan síðast. Á bara erfitt með að vakna á morgnana og koma mér á lappir. Í morgun var meira að segja hlegið að mér hvað ég var eitthvað úldin og þreytt í framan.
Ég er enn að bíða eftir snjó. Maður er í svona upp og niðursveiflum á hverjum degi á meðan maður bíður eftir snjónum. Einn morguninn vakna ég kát og glöð og bíð bara eftir að það snjói aðeins meira. Morguninn eftir er svo allur fallegi hvíti liturinn horfinn á bak og burt. Þetta er svona eins og að rétta krakka sleikjó og taka hann svo alltaf í burtu áður en hann nær að fá sér smakk.

1 Comments:
ohh hvað ég er sammála þér... þetta er óþolandi.
Post a Comment
<< Home