Monday, January 16, 2006

Og þá kom snjór....

Mér til mikillar gleði fór að snjóa eitthvað af ráði og nú er allt yndislega hvítt og fallegt. Ég er einmitt búin að bera að horfa út um gluggann á skólastofunni minni í morgun og hvílíkt landslag. Það er ekki erfitt að gleyma sér yfir fegurðinni sem ég sé. Reykjafjallið er beint á móti mér og fyrir neðan það er Varmáinn og Reykjafoss. Aðeins lengra sé ég Hamarinn og bara fullt af fjöllum í fjarska. Svo er auðvitað fullt af trjám og gróðri alls staðar í kring. Já það bætir sko geðheilsuna í skammdeginu að hafa svona fallegt útsýni.

Annars var helgin mjög góð. Pabbi gamli átti afmæli á laugardaginn og auðvitað kíktum við í kaffi á Laugarnesveginn. Á sunnudaginn fórum við svo með Halla og Sigrúnu Maggý upp að Skíðaskála að renna okkur á snjóþotum. Það var rosalega gaman og þeir eldri skemmtu sér jafnvel og börnin. Jónína litla var sú eina sem var ekki að fíla þetta neitt mjög vel og leist ekkert á það að vera eitthvað að renna á fleygiferð niður brekkurnar. Svo jeppuðumst við aðeins uppi á Heiði en Halli festi sig þrisvar og þá þurftum við að draga hann upp!!! he he

Næst á dagskrá er svo bara að fara í skíðaferð í Bláfjöll og æfa sig svolítið á bretti svo það er eins gott að snjórinn haldist svolítið lengur.

Við hjónin ákváðum líka að fara í (brúðkaups-) ferð til London í endaðan febrúar. Ég segi brúðkaupsferð því í okkar tíu ára sambandi höfum við ALDREI farið tvö saman úr landi. Verðum í fjórar nætur í London og ég hlakka óskaplega til.

Já ef þið viljið láta spá fyrir ykkur þá stendur það ennþá til boða. Það hefur þegar ræst hluti af spánni hennar Jónínu aðeins nokkrum dögum eftir að ég spáði fyrir henni!!! Ekki langt í að seinni hlutinn rætist :o)

4 Comments:

At January 18, 2006 11:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Góða skemmtun í London! :D

 
At January 19, 2006 1:21 PM, Blogger Sigrún said...

Hvað þarf maður að gera til að láta spá fyrir sér...?

 
At January 20, 2006 10:03 AM, Blogger Kolla said...

Ég skal sko spá fyrir þér Sigrún mín.
Þetta verður alveg helv. gott ár hjá þér. Það verða flutningar og líka eitthvað um ferðalög. Þú átt eftir að djamma frá þér allt vit og fara á tónleika í útlöndum. Ég finn fyrir alveg mjög sterkri tilfinningu að þetta verður alveg óskaplega skemmtilegt ár hjá þér :o)

 
At January 20, 2006 8:22 PM, Anonymous Anonymous said...

He He þetta með festurnar, við skulum bara reyna aftur ;) þá skulum við sjá hver dregur hvern

 

Post a Comment

<< Home