Úff þá er það búið, er búin að vera í foreldraviðtölum í dag. Reyndar bara gengið alveg ágætlega, maður er að verða aðeins sjóaður í þessu.
Vaaaaaáá var rétt í þessu að frétta að ég vinn með ógeðslega frægri mömmu!!! Haldiði ekki að ég sé að vinna með mömmu hans jesús Péturs!! Já já þeir sem vita ekki hver Pétur í Buff er finnst þetta örugglega ekkert merkilegt. En mér finnst þetta huuuuuge og ég veit að Tinnu systur finnst það líka því hún er æstur aðdáandi.
Gaman gaman
Já svei mér þetta breitti bara deginum til hins betra.
Best að fara að ganga frá og koma mér heim.
Góðar stundir.

3 Comments:
Þetta er sko stórmerkilegt, að þú sért að vinna með mömmu hans Jesús Péturs :) En átt þú eki að heita kennari, maður skrifar breytti ekki með i heldur y :/
Takk fyrir það :o) og það eru líka tvö k í ekki!!!
úps, innsláttarvilla :)
Post a Comment
<< Home