Síðastliðna viku...
...hef ég:
-farið út að borða með manninum mínum
- séð söngleikinn Kabarett og skemmt mér stórkostlega
- misst mig nokkrum sinnum yfir nemendum mínum
- skoðað ótal jeppa á bílasölum
- sungið í singstar með Sigrúnu og vinkonum hennar
- farið á Pakkhúsið og fílað mig eins og á Gjánni í gamla daga
- hjálpað Jónu og Óla að þrífa gömlu íbúðina mína
- erft bróður minn að borðstofusetti sem ég átti uppi á háalofti
- skoðað nýju íbúðina hans Halla
- farið í kaffi til tengdó
- hóstað og hóstað
Eiginlega gerðist þetta bara allt um helgina svo það var í nógu að snúast. Ekkert á prjónunum fyrir næstu helgi. Langar samt alveg óskaplega að fara að komast í bústað og hafa það notalegt.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home