Gleðilegt ár
Af því að ég er búin að hafa það svo gott og varla búin að nenna að kveikja á tölvunni heima hjá mér biðst ég hér með afsökunar á þessu bloggleysi.
Óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla!!!
Já ég sko búin að hafa það gott. Borða, sofa og lesa, það bara getur ekki orðið betra. Mikið skelfilega var erfitt að vakna í morgun. Rigningin gjörsamlega lafði á augnlokunum á mér. Ég væri hreinlega alveg til í smá snjó núna. Þó ekki væri nema til að lýsa aðeins upp skammdegið.
Langar líka á snjóbretti. Eftir að ég prófaði bretti í fyrra er ég alveg sjúk.
Ég finn það á mér að þetta ár 2006 eigi aftir að vera mjög gott. það einhvernveginn liggur í loftinu. Svona eins og endalaus gleði og hamingja. Já ég ætla að vera mega jákvæð á þessu ári, ætla að tuða minna og skemmta mér meira!!! Ég gæti svei mér þá bara orðið góð völva. Ef þið viljið láta mig spá um árið fyrir ykkur þá bara talið við mig.

3 Comments:
Gleðilegt ár elskan mín ;)
Já spá fyrir mér. Eintóm gleði og hamingja???
Já ég sé fyrir mér mikla gleði á Baldursgötunni. Einhverjar breytingar í starfi til hins betra og svei mér þá ef það er ekki einhver lögfræðingur á vappi í kúlunni minni!!! Nei bíddu þetta er einhver frægur fótboltamaður kannski lögfæðingur með fótboltaáhuga hehe.
Post a Comment
<< Home