Enginn bíll - ekkert líf!!!
Það er lífsnauðsynlegt að eiga bíl. Er búin að vera bíllaus í sólahring og það er ekki gott. Öll plön renna einhvernveginn út í sandinn þegar bíllinn er ekki til staðar. Var t.d. búin að lofa mér á Selfoss í kvöld þegar ég uppgvötaði að ég hefði engan bíl. Og ekki notar maður almenningsfarartækin á Íslandi lengi því það kostar á við að reka þrjá bíla.
Ég á samt ennþá bíl, hann er bara í viðgerð og ég fæ hann ekki aftur fyrr en á morgun. Þá ætla ég líka að reyna að selja þennan eðalbíl og kaupa mér einhvern stærri og meiri hehe.
En ef ykkur langar í Golf variant (station) þá er minn til sölu, nýkominn úr viðgerð og þrælgóður.

1 Comments:
Jæja er ekki kominn tími á nýtt blogg ;)
Post a Comment
<< Home