Thursday, November 10, 2005

Hóst hóst arg arg

Ég er búin að vera hálf þunglynd undanfarið þar sem einhver flensa hefur herjað á mig í tvær vikur. Ég hósta eins og vitleysingur og því ætlar bara ekkert að linna. Og þessu fylgja síðan þessir ógeðslegu verkir í rifbeinunum eins og það sé verið að stinga mig með hnífi. AAAAAAArrrrrrrrrgggggggghhhhhhhhhh.
Gott að geta fengið smá útrás fyrir þetta.
Njörður orðinn frekar pirraður á mér því ég held vöku fyrir honum á nóttunni og þegar maður er svona pirraður nenni ég ekki að gera nokkuð heima hjá mér. Já já tuð tuð og væl væl, ekki mikið annað að frétta af mér þessa dagana.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home