Helgin síðasta
Átti svo yndislega skemmtilega helgi. Þó búið væri að vara við stormi og fólk beðið um að vera ekki á faraldsfæti að ástæðulausu fórum við samt. Mikið í húfi og búið að borga fyrir tvo bústaði upp í Borgarfirði. Við fórum samt afar varlega og búnar skoða veðurspána aftur og aftur. Föstudagskvöldið var yndislegt og sáum við sko ekki eftir að hafa farið af stað þegar uppeftir var komið og sátum að sumbli við arineld.
Morguninn eftir höfðum við það svo notalegt, spiluðum og átum og biðum eftir að okkar heittelskuðu eiginmenn og unnustar kæmu til okkar í herlegheitin. Þegar þeir loks birtust fóru þeir í pottinn með öl á meðan við sáum um kvöldverðinn. Allir átu svo á sig gat og haldið áfram að sulla í hinum ýmsu kokteilum. Fórum í actionary og geri aðrir betur í að leika eftir "gróðurhúsalofttegund" he he mér tókst það!! Óli klikkaði svo auðvitað ekki með gítarinn og svo var sungið fram eftir nóttu, sem fór þó misjafnlega vel í eyrun híhí..
Þrifum svo bústaðinn á mettíma á sunnudeginum og keyrðum heim sæl og glöð eftir góða helgi.
Held bara að þessi helgi hafi bjargað lífi mínu fram að jólum, takk fyrir þetta allt saman dúllurnar mínar.
P.S Laufey, bíð spennt eftir að kallað verði á mig í að spila Katan!!!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home